Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar sækja ósigrað lið Hauka heim

Daniel Birkelund á ærið verkefni fyrir höndum með Þórsliðinu í kvöld þegar Þórsarar sækja ósigrað lið Hauka heim í Hafnarfjörðinn. Mynd: Ármann Hinrik.

Handboltalið Þórs í Olísdeild karla á ærið verkefni fyrir höndum í kvöld þegar Þórsarar sækja Hauka heim í Hafnarfjörðinn í 10. umferð deildarinnar.

Hafnarfjarðarliðið hefur verið ósigrandi í deildinni það sem af er tímabilinu, hefur unnið níu fyrstu leiki sína og er með 76 mörk í plús, sem þýðir að liðið hefur unnið leikina með um það bil 8,4 marka mun að meðaltali. Nær óvinnandi vígi, að því er virðist og fyrirfram mjög erfitt verkefni fyrir Þórsara. Haukar unnu KA á Akureyri í 9. umferðinni með níu marka mun, 37-26, en í sömu umferð töpuðu Þórsarar heima fyrir hinu Hafnarfjarðarliðinu, 30-37. Haukar eru augljóslega á toppi deildarinnar með 18 stig, en Þór er í 8. sætinu með sex stig, hefur unnið þrjá leiki af níu.

    • Handbolti
      Olísdeild karla, 10. umferð
      Ásvellir í Hafnarfirði kl. 18:30
      Haukar - Þór