Emma enn með yfir 30 stig í sigri Þórs
Kvennalið Þórs í körfubolta vann b-lið Njarðvíkur með 15 stiga mun í 1. deild kvenna í gær, eða Bæjarins beztu deildinni, eins hún ku nú heita eftir samning Körfuknattleikssambands Íslands og Bæjarins beztu þar um. Líklega mjög stutt þar til nafnið Pylsudeildin verði notað í daglegu tali.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn, en Þór þó með frumkvæðið og náði mest tíu stiga forskoti snemma í öðrum leikhluta. Njarðvíkingar minnkuðu muninn niður í eitt stig fyrir leikhlé, staðan 35-36 eftir fyrri hálfleikinn.
Þórsliðið jók svo forystuna jafnt og þétt mestallan seinni hálfleikinn, náði mest 20 stiga forystu, en munurinn að lokum 15 stig.
Njarðvík b - Þór (15-21) (20-15) 35-36 (16-27) (17-20) 68-83
Emma Karólína Snæbjarnardóttir var sem fyrr á fljúgandi ferð í Þórsliðinu, skoraði 36 stig og hefur skorað 31,2 stig að meðaltali í leik það sem af er leiktíðinni. Emma er einnig efst á blaði í Þórsliðinu með 4,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Nile Miller var með athyglisverða tölfræði, skoraði 19 stig og tók 21 frákast. Hjá Njarðvíkingum var það Sara Björk Logadóttir sem var mest áberandi, skoraði 23 stig.
Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:
Njarðvík b
Sara Björk Logadóttir 23/2/1, Dagbjört Dora Kristmannsdóttir 16/8/0, Kristín Björk Guðjonsdóttir 10/4/8, Aníta Rut Helgadóttir 6/7/1, Harpa Rós Ívarsdóttir 6/5/3, Rósa Kristín Jónsdóttir 3/3/1, Þorgerður Tinna Kristjánsdóttir 2/3/0, Fanney Helga Grétarsdóttir 2/2/1. Elísabet Agla Vilhjálmsdóttir og Emma Ástrós Gunnarsdóttir komust ekki á blað.
Þór
Emma Karólína Snæbjarnardóttir 36/9/4, Nile Miller 19/21/3, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 14/5/1, Ksenija Kuzmanoviz 4/3/1, Karen Lind Helgadóttir 6/3/2, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 2/0/2, Kristný Halla Bragadóttir 2/0/1, Vaka Bergrún Jónsdóttir 0/2/1, María Sól Helgadóttir 0/0/1.
Þrjú lið eru nú efst og jöfn í deildinni, Selfoss, Þór Þorlákshöfn og Þór Akureyri, öll með fjóra sigra og eitt tap.
Næst:
- Íþróttahöllin á Akureyri
Laugardagur 5. desember kl. 18
Þór - Aþena