Leikmenn lýsa miklum vonbrigðum með slitin
Leikmenn meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa miklum vonbrigðum með þá ákvörðun KA að slíta samstarfi við Þór um kvennalið. Ekki bara um ákvörðunina heldur einnig framkvæmdina, segir í yfirlýsingunni.
Yfirlýsing leikmannanna er svohljóðandi:
Eftir 28 keppnistímabil heyrir félagið okkar sögunni til: 26 ár í efstu deild, tveir Íslandsmeistaratitlar, Evrópuleikir og ótal minningar.
Með þungum huga tökum við leikmenn meistaraflokks Þórs/KA á móti þeim fréttum að KA hafi ákveðið að slíta samstarfi félaganna. Ákvörðunin er mikil vonbrigði, ekki bara niðurstaðan heldur einnig framkvæmd hennar. Við í félaginu höfum staðið saman í gegnum bæði súrt og sætt, barist nýlega fyrir sæti okkar í Bestu deildinni og horft bjartsýnar til framtíðar með mikinn metnað fyrir komandi tímum. Við höfum lagt ómælda vinnu, tíma og ástríðu í þetta verkefni og teljum okkur eiga skilið að vera sýnd sú virðing að fá upplýsingar og eiga samtal um ákvarðanir sem hafa bein áhrif á okkur.
Nú tekur við nýr kafli og við horfum fram á bjarta tíma. Það sem situr eftir er ekki árangur eða titlar, heldur fólkið: leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og stuðningsmenn. Fólk sem hefur lagt líf og sál í félagið okkar. Við ykkur viljum við segja takk. Takk fyrir vinnuna, stuðninginn og styrkinn. Takk fyrir allt sem þið hafið gefið okkur. Stuðningur ykkar hefur alltaf skipt okkur máli.
Við vonum að þið fylgið okkur áfram inn í nýjan kafla, nýtt upphaf, nýjar áskoranir og ný markmið. Sjáumst á vellinum!
Leikmenn meistaraflokks Þórs/KA