Sonja Lí fékk gull og silfur í stórsviginu
Alþjóðlega skíðamótinu 66°North Cup Cup í Hlíðarfjalli lauk í gær þegar tvívegis var keppt í stórsvigi. Sonja Lí Kristinsdóttir sigraði á fyrra mótinu og varð í öðru sæti í seinna skiptið. Hún var eini Akureyringurinn sem komst á verðlaunapall.
Upphaflega átti að keppa í stórsvigi á þriðjudag og miðvikudag en fyrra mótinu var frestað vegna veðurs og því bæði keppt fyrir og eftir hádegi í gær.
„Veðrið var svo sannarlega með okkur í liði í dag og fór keppnin fram í sól og blíðu í Suðurbakkanum. Aðstæður voru til fyrirmyndar en upphitun keppenda í morgun fólst meðal annars í því að skafa lausan snjó úr bakkanum. Allt gekk vel fyrir sig og almenn ánægja var með daginn,“ sagði á vef Skíðafélags Akureyrar (SKA) í gærkvöldi.
Þar segir að þótt alþjóðlega mótinu sé formlega lokið sé skíðaveislan rétt að byrja en Skíðamót Íslands í alpagreinum hefst í Hlíðarfjalli á föstudaginn.
- Á vef SKA má sjá öll úrslit og myndir af fleiri verðlaunahöfum: