Andrés önd: Metfjöldi á 50 ára afmælinu
Fleiri taka þátt í Andrésar andar leikunum í skíðaíþróttum í ár en nokkru sinni. Leikarnir verða settir annað kvöld, keppni hefst á fimmtudag og stendur til laugardags. Alls eru 1084 börn skráð sem keppendur að þessu sinni – í alpagreinum, snjóbrettum, skíðagöngu og skíðaskotfimi. Þetta er töluverð aukning frá því í fyrra þegar skráðir þátttakendur voru 930.
Þetta eru 50 ára afmælisleikar; fyrstu Andrésar andar leikarnir á Akureyri voru haldnir fyrir 50 árum, 1976. Af því tilefni verður haldin sérstök afmælissýning í íþróttahöllinni á laugardaginn, 25. apríl, frá kl. 12.00 til 13.30, þar sem saga leikanna verður rifjuð upp í myndum, viðtölum og heimildum frá liðnum árum.
- Meira um sýninguna neðar í fréttinni
Þátttakendur í ár koma frá 17 félögum á Íslandi auk gesta frá Geilo í Noregi. Keppendur í alpagreinum eru 833, á snjóbrettum keppa 117, í skíðagöngu 163 og 54 skíðaskotfimi, en nokkrir þátttakendur keppa í fleiri en einni grein. Flestir keppendur koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 274 þátttakendur, en næst stærsta félagið er Skíðadeild Ármanns með 107 þátttakendur.

Undirbúningur leikanna hefur staðið yfir síðan í haust og búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum, enda Andrésarleikarnir alltaf hápunktur hvers skíðavetrar, auk þess sem leikarnir verða óvenju veglegir í tilefni 50 ára afmælis.
Aðstæður í Hlíðarfjalli eru mjög góðar eftir mikla ofankomu í lok mars og byrjun apríl. Hafa starfsmenn Hlíðarfjalls unnið hörðum höndum við að ýta til snjó og troða brautir til að skapa góðar aðstæður til að leikarnir geti farið fram á sem allra bestan hátt, að því er segir í tilkynningu frá Andrésar andar nefndinni.
Andrésar andar leikarnir á vef Skíðafélags Akureyrar
Andrésar andar leikarnir á Facebook

Glæsileg sýning í Íþróttahöllinni
- Á sýningunni verður ljósmyndasýning sem Hörður Geirsson safnvörður Minjasafnsins á Akureyri hefur tekið saman. Myndirnar endurspegla sögu leikanna á síðustu 50 árum, þróun þeirra og vöxt. Einnig verður sýnd heimildamynd með texta eftir Hermann Sigtryggsson og Kristrúnu Lind Birgisdóttur og myndum frá Herði.
- Sýnd verða viðtöl við Ívar Sigmundsson, fyrrum formann Skíðafélags Akureyrar og forstöðumann Hlíðarfjalls, og Fjalar Úlfarsson, núverandi formann Andrésarnefndarinnar.
- Þá verður einnig hægt að skoða blaðaúrklippur og annað efni sem varpar ljósi á sögu og þróun leikanna.
- Sýningin er opin öllum, en sérstaklega eru fyrrum keppendur, fjölskyldur og sjálfboðaliðar Andrésarleikanna boðnir velkomnir til að koma saman, rifja upp góðar minningar og fagna þessum merka áfanga.