Gefur mér mest að gleðja yngsta hópinn
Á Facebook-síðu Akureyrarbæjar birtast vikulegir pistlar um fólkið í bænum undir heitinu Akureyringur vikunnar. Það þarf ekki að koma á óvart að Akureyringur þessarar viku tengist vinsælasta skíðamóti landsins ár hvert, Andrésar Andar leikunum. Fjalar Úlfarsson er formaður Andrésarnefndarinnar og er Akureyringur vikunnar.
Pistillinn á Facebook-síðu bæjarins um Fjalar:
Fjalar Úlfarsson tók þátt í sínum fyrstu Andrésar Andar leikum fyrir 40 árum. Í dag er hann formaður Andrésarnefndarinnar – og Akureyringur vikunnar.
„Ég man lítið eftir fyrstu leikunum mínum, en ég man að það var Sísý frænka sem dró mig með á skíði og á minn fyrsta Andrés – og þá var ekki aftur snúið. Ég æfði til ársins 1998, en þá færði ég mig yfir í þjálfun og hef starfað við hana síðan,“ segir Fjalar, sem fór meðal annars sem landsliðsþjálfari á Ólympíuleikana árið 2014.
„Bakterían kviknaði sem sagt á Andrési og ég er ekkert einsdæmi um það. Margir krakkar byrja að æfa skíði af alvöru eftir fyrstu Andrésarleikana. Þetta er mikil skíðaveisla og keppendur koma hingað aftur og aftur til að upplifa stemninguna og vináttuna. Sjálfur á ég ótal vini víðs vegar um landið í gegnum þetta mót, og langflestir skíðakappar landsins byrjuðu sinn feril á Andrési.“
Andrésar Anda leikarnir fagna nú 50 ára afmæli og verða því einstaklega glæsilegir í ár. „Við höfum lagt gríðarlega mikið undir. Öll umgjörð – keppnisbrautir, skrúðganga og annað – er stærra og flottara. Fjallið hefur heldur ekki verið betra hvað snjó varðar frá því fyrir COVID. Við fengum mikinn snjó fyrir páska og starfsfólk í Hlíðarfjalli hefur unnið frábært starf við að undirbúa allt.“
Þrátt fyrir að stjórn mótsins sé aðeins átta manna koma yfir 140 sjálfboðaliðar að framkvæmd þess. „Við gætum ekki gert þetta án þeirra. Þetta er sjálfboðastarf sem gefur svo mikið til baka. Sjálfur hef ég tekið mér frí í vinnu og einbeiti mér alfarið að Andrési fram á sunnudag, þegar öllu verður lokið.“
En hvað er það við Andrésar Andar leikana sem er svona sérstakt? „Að sjá gleðina í andlitum allra þessara barna fær mann til að leggja sig allan fram. Það er fátt sem jafnast á við að fá barn til sín sem segir að þetta sé það skemmtilegasta sem það hefur gert á ævinni. Það gefur mér mest – að gleðja yngsta hópinn. Þess vegna hef ég, sem formaður, lagt mikla áherslu á að umgjörðin fyrir þau sé eins góð og mögulegt er. Auðvitað kemur eitthvað upp á í svona stóru móti, en það snýst um að láta sem minnst á því bera. Keppendurnir eru alltaf í forgrunni – það er fyrir þau sem við gerum þetta.“