Fara í efni
Íþróttir

Andrés önd mættur enn eitt árið – MYNDIR

Mynd af Facebook Andrésar andar leikanna

Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum voru settir með pompi og prakt í gærkvöldi, eins og hefð er fyrir á síðasta degi vetrar. Þetta eru stórafmælisleikar eins og áður hefur komið fram – 50 ár eru síðan fyrstu leikarnir voru haldnir í Hlíðarfjalli, vorið 1976. Og það eru 50. leikarnir sem fara fram í þetta skipti því einu sinni varð að aflýsa þeim vegna snjóleysis.

Venju samkvæmt var skrúðganga frá Lundarskóla að Íþróttahöllinni þar sem leikarnir voru settir og var gangan sú arna líklega fjölmennari en nokkru sinni því þátttakendur á leikunum hafa aldrei verið fleiri; alls eru 1084 börn skráð sem keppendur að þessu sinni – í alpagreinum, snjóbrettum, skíðagöngu og skíðaskotfimi. Þetta er töluverð aukning frá því í fyrra þegar skráðir þátttakendur voru 930. Fararstjórar og  þjálfarar eru vitaskuld alltaf með í för og margir foreldrar fylgja einnig börnum sínum.

Skrúðgangan leggur af stað frá Lundarskóla áleiðis að Íþróttahöllinni í gærkvöldi. Mynd: Þorgeir Baldursson

Keppni hefst jafnan að morgni sumardagsins fyrsta og svo er einnig nú. Keppni hófst klukkan 9 á brettum og í stórsvigi, skömmu síðar hófst keppni í svigi og göngu og fjörið heldur áfram fram eftir degi. Verðlaunaafhending verður í Íþróttahöllinni kl. 19, á sama tíma annað kvöld og laugardag, þegar leikunum lýkur, hefst afhending verðlauna kl. 15 og síðan verður mótinu slitið.

  • Á setningarathöfninni var Akureyringurinn Tómas Leifsson heiðraður af Skíðasambandi Íslands (SKÍ). Tommi fékk heiðursstjörnu SKÍ, æðstu viðurkenningu sambandsins.
  • Þá voru Ívar Sigmundsson, Gísli Kristinn Lórenzson og Hermann Sigtryggsson heiðraðir; þremenningarnir voru í fyrstu Andrésar andar nefndinni ásamt Leifi Tómassyni og Kristni Steinssyni, sem báðir eru látnir. Ívar og Gísli Kristinn voru í nefndinni allar götur frá 1976 til ársins 2005 – í þrjá áratugi! 
  • Akureyringurinn Sonja Lí Kristinsdóttir, sem keppti í svigi og stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu fyrr á árinu, ávarpaði keppendur á leikunum og hvatti þá til dáða.
  • Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri og fyrrverandi skíðamaður, setti leikana með ávarpi.
  • Ólöf Milla Valsdóttir, 16 ára stúlka úr Skíðafélagi Akureyrar, tendraði mótseldinn. Ólöf Milla er dóttir Akureyringsins Dagnýjar Lindu Kristjánsdóttur, fyrrverandi skíðadrottningar, Ólympíufara og margfalds Íslandsmeistara.

Þorgeir Baldursson var á ferðinni með myndavélina í gær og neðar má sjá nokkrar myndir af Facebook síðu Andrésar andar leikanna.

Þrír úr fyrstu Andrésar andar nefndinni eru á lífi og voru heiðraðir á setningarathöfninni í gærkvöldi. Frá vinstri: Hermann Sigtryggsson, Ívar Sigmundur og Gísli Kristinn Lórenzson. Með þeim í fyrstu nefndinni voru Leifur Tómasson og Kristinn Steinsson. Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna


Tómas Leifsson, til hægri, hlaut æðstu viðurkenningu Skíðasambands Íslands, heiðursstjörnu SKÍ. Til vinstri er Gísli Reynissosn, formaður SKÍ. Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Ólymíufarinn Sonja Lí Kristinsdóttir hvatti keppendur á leikunum til dáða. Mynd: Þorgeir Baldursson

Karl Frímannsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri setti Andrésar andar leikana. Mynd: Þorgeir Baldursson

Ólöf Milla Valsdóttir, 16 ára stúlka úr Skíðafélagi Akureyrar, tendraði mótseldinn. Mynd: Þorgeir Baldursson

Aron Can skemmti á setningarathöfninni. Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna

Mynd af Facebook síðu Andrésar andar leikanna