Fara í efni
Íþróttir

Sólon og María Sól valin best hjá FIMAK

Sólon Sverrisson og María Sól Jónsdóttir hafa verið valin fimleikamaður og fimleikakona fólk ársins 2023 á Akureyri.

Sólon Sverrison keppir í áhaldafimleikum en María Sól í áhaldafimleikum. „Þau eiga það sameiginlegt að hafa stundað íþróttina síðan á leikskólaaldri og með mikilli vinnu, ástundum og einbeitingu náð langt hvort í sinni grein,“ segir á heimasíðu FIMAK. Það eru þjálfarar hjá félaginu sem velja.

Um Sólon segir á síðunni:

„Sólon sem verður 17 ára á árinu hefur æft fimleika hjá FIMAK frá leikskólaaldri. Ýmsir hafa komið að þjálfun Sólons þar á meðal Jan Bogodoi á yngri árum en síðustu þrjú ár hefur Mario Picón þjálfað Sólon. Á fyrri hluta ársins átti Sólon við meiðsli að stríða en kom sterkur inn á Haustmót FSÍ sem fór fram í Gerplu í október. Þar keppti Sólon í frjálsu þrepi í unglingaflokki, hann var í öðru sæti í fjölþraut, hlaut brons á gólfi, gull í hringum og gull í stökki. Sólon tók einnig þátt í landsliðsæfingum á árinu. Sólon er gríðarlega ákveðinn, vinnusamur, kurteis og leggur mikið á sig við æfingar til að ná markmiðum sínum. Auk þess er hann frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur. Meðfram þessum stífu æfingum er hann á öðru ári í vélstjórn við VMA.“

Umsögn um Maríu Sól er svohljóðandi:

„María Sól sem verður nítján ára á árinu hefur æft áhaldafimleika hjá FIMAK frá leikskólaaldri. Lengst af æfði hún undir leiðsögn Florin og Mirelu Paun en þjálfarar hennar frá árinu 2020 eru Mihaela og Jan Bogodoi. María Sól keppir í frjálsum æfingum. Á GK móti sem haldið var í maí vann hún til fimm verðlauna. 1. sæti fyrir stökk, 2. sæti fyrir fjölþraut, 3. sæti fyrir tvíslá, slá og gólf. Mótið var haldið hjá Gerplu. Einnig tók María Sól þátt í landsliðsæfingu í áhaldafimleikum sem fór fram í janúar 2022. María Sól er góð fyrirmynd yngri iðkenda deildarinnar. Það hefur hún sýnt með vinnusemi sinni, ákveðni og vingjarnlegri framkomu. Auk þess að æfa fimleika er hún aðstoðarþjálfari yngri hópa og er á síðasta ári á íþróttabraut við VMA. Við hlökkum til að sjá Maríu Sól gera góða hluti í framtíðinni og óskum henni innilega til hamingju með titilinn Íþróttakona ársins.“

  • Þess má geta að Fimleikafélag Akureyrar sameinaðist Knattspyrnufélagi Akureyrar á dögunum og er nú fimleikadeild KA.