Íþróttir
Nöfn 10 efstu í kjöri íþróttafólks Akureyrar
27.01.2026 kl. 11:00
Íþróttafólk Akureyrar 2024: Alex Cambray Orrason, kraftlyftingamaður úr KA og Sandra María Jessen, knattspyrnukona úr Þór/KA, nú leikmaður 1. FC Köln í Þýskalandi. Bæði eru tilnefnd í kjörinu að þessu sinni. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Nöfn 10 efstu í kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar fyrir árið 2025 hafa verið birt. Kjörinu verður lýst í hófi sem Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær standa fyrir í menningarhúsinu Hofi á fimmtudaginn. Þangað er öllum bæjarbúum boðið og ástæða til að hvetja sem flesta til að mæta. Athöfnin hefst klukkan 17.30.
Þetta verður í 47. sinn sem Íþróttamaður Akureyrar er heiðraður og í 10. skipti sem kjörið er tvískipt, bæði íþróttakona- og íþróttakarl Akureyrar valin og heiðruð.
Tíu efstu tilnefningar til íþróttakonu Akureyrar 2025 í stafrófsröð
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir – GA - golf
- Bergrós Ásta Guðmundsdóttir - KA/Þór - handbolti
- Drífa Hrund Ríkharðsdóttir – KA - lyftingar
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir – Þór - körfubolti
- Hafdís Sigurðardóttir - HFA - hjólreiðar
- Hulda Björg Hannesdóttir Þór/KA - knattspyrna
- Julia Bonet Careras – KA - blak
- Sandra María Jessen – Þór /KA - knattspyrna
- Stefanía Daney Guðmundsdóttir - UFA - frjálsar íþróttir
- Sædís Heba Guðmundsdóttir – SA - listhlaup á skautum
Tíu efstu tilnefningar til íþróttakarls Akureyrar 2025 í stafrófsröð
- Alex Cambray Orrason – KA - kraftlyftingar
- Baldvin Þór Magnússon - UFA - hlaup
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson - KA - handbolti
- Einar Árni Gíslason – SKA - gönguskíði
- Hallgrímur Mar Steingrímsson – KA - knattspyrna
- Sigfús Fannar Gunnarsson – Þór - knattspyrna
- Sólon Sverrisson – KA - fimleikar
- Unnar Hafberg Rúnarsson – SA - íshokkí
- Veigar Heiðarsson – GA - golf
- Þorbergur Ingi Jónsson – UFA - hlaup
Athöfnin er opin öllum sem fyrr segir. Húsið verður opnað klukkan 17 en athöfnin sjálf hefst kl. 17:30.