Fara í efni
Íþróttir

Í dag: Frjálsar, golf, sandspyrna og hávaði

Frjálsar íþróttir, golf, sandspyrna og hávaðakeppni eru á dagskrá dagsins. Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum hefst á Þórsvellinum í dag, Íslandsmót í hjólreiðum hófst í gær með keppni í tímatöku í Eyjafjarðarsveit, Arctic Open miðnæturgolfmótið heldur áfram og á Bíladögum er boðið upp á sandspyrnu og hávaðakeppni.

Frjálsíþróttamót á Þórsvelli

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára hefst á Þórsvellinum kl. 17 í dag að því er ráða má af tímaseðli mótsins sem finna má á vef Frjálsíþróttasambandsins. Í dag er á dagskrá keppni í stangarstökki, sleggjukasti og 200 metra hlaupi. 

Miðnæturgolfið heldur áfram

Áfram er haldið með keppni á Arctic Open miðnæturgolfmóti Golfklúbbs Akureyrar. Þar er keppt í opnum flokki, með og án forgjafar, en mótið er þekkt og vinsælt fyrir miðnæturgolf. Spilaðar eru 18 holur hvorn keppnisdag. Upplýsingar um mótið má finna á mótssíðunni á vef Golfklúbbs Akureyrar.

  • Föstudagur 19. júní
    Ræst út kl. 10

Sandspyrna og hávaði á Bíladögum

Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hinum árlegu Bíladögum. Keppnisgreinar dagsins eru sandspyrna og hávaðakeppni. 

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum og keyrum vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og gerum Bíladaga frábæra.
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.