Sigþóra Brynja og Arnar Íslandsmeistarar
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) varð í morgun Íslandsmeistari í víðavangshlaupi kvenna. Sigþóra hljóp tíu kílómetrana á 43:56 mínútum. Keppendur úr UFA hirtu reyndar öll verðlaunin í kvennaflokknum því Rannveig Oddsdóttir kom önnur í mark rúmri mínútu á eftir Sigþóru og Hafdís Sigurðardóttir nokkuð á eftir henni í þriðja sætinu.

Þrefaldur UFA sigur í kvennaflokki. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttier er Íslandsmeistari, Rannveig Oddsdóttir (1521) varð önnur og Hafdís Sigurðardóttir, betur þekkt fyrir afrek sín á reiðhjólum (1519) varð þriðja. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Arnar Pétursson úr Breiðabliki er Íslandsmeistari í víðavangshlaupi karla. Hann hljóð tíu kílómetrana í Kjarnaskógi í morgun á 35:06 mínútum og vann hlaupið örugglega. Rúmri hálfri mínútu á eftir honum kom Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA í öðru sæti og nokkru þar á eftir Halldór Hermann Jónsson, einnig úr UFA, í þriðja sætinu.
Úrslitin í 10 km víðavangshlaupinu má finna á vefnum timataka.net. Einnig er hægt að sjá úrslit í hverjum flokki fyrir sig með því að smella á viðkomandi flokka hér að neðan.
- Konur - 10 km: Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir (UFA) - 43:56 ínútur
- Karlar - 10 km: Arnar Pétursson (Breiðabliki) - 35:06 mínútur
Ármenningar hirtu báða Íslandsmeistaratitlana í fullorðinsflokkunum, kvenna og karla, í fimm kílómetra hlaupinu. Þar voru það þau Björn Margeirsson og Rakel Ingólfsdóttir sem komu fyrst í mark. Keppendur frá UFA röðuðu sér í sætin á eftir þeim báðum. Davíð Jónsson úr UFA varð annar í karlaflokki og Stefán Garðarsson þriðji. Í kennaflokknum varð Rannveig Oddsdóttir úr UFA önnur og Elma Eysteinsdóttir þriðja. Rannveig vann reyndar til silfurverðlauna bæði í fimm og tíu kílómetrunum þar sem ræst var í fimm kílómetrana kl. 10 og tíu kílómetrana kl. 11:45.
Sigurvegarar í einstökum flokkum
- Konur, eldri aldursflokkar - 5 km: Rakel Ingólfsdóttir (Ármanni) - 16:34 mínútur
- Karlar, eldri aldursflokkar - 5 km: Björn Margeirsson (Ármanni) - 21:35 mínútur
- Piltar 16-17 ára - 5 km: Sindri Karl Sigurjónsson (ÍR) - 18:07 mínútur
- Stúlkur 15 ára - 5 km: Lilja Sól Ástþórsdóttir - 21:26 mínútur
- Piltar 15 ára - 5 km: Vakur Hrafn Plessy (UFA) - 24:37 mínútur
- Stúlkur, 13-14 ára - 3,4 km: Hekla Malín Ellertsdóttir (UFA) - 18:03 mínútur
- Piltar, 13-14 ára - 3,4 km: Ámundi Kuylen Drífuson (Ármanni) - 10:30 mínútur
- Stúlkur, 12 ára og yngri – 1,7 km: Jóhanna Björt Baldvinsdóttir (UFA) - 07:00 mínútur
- Piltar, 12 ára og yngri – 1,7 km: Patrekur Halldórsson (UFA) - 06:21 mínúta
Einnig er hægt að sjá úrslit í öllum eldri aldursflokkum frá 40 ára og upp úr, þar sem keppt var um Íslandsmeistaratitla, á vefnum timataka.net. Þar er einnig að finna úrslit í almennum flokknum þar sem allir gátu tekið þátt óháð félagsaðild.
Þorgeir Baldursson kíkti við í Kjarnaskógi í morgun og festi nokkra hlaupara á filmu.