Fara í efni
Íþróttir

Golf: Tvær frá GA á HM stúlknalandsliða

Lið Íslands á HM stúlknalandsliða í golfi: Lilja Maren Jónsdóttir (GA), Bryndís Eva Ágústsdóttir (GA) og Embla Hrönn Hallsdóttir úr GKG. Mynd: GSÍ.

Tvær af þremur í stúlknalandsliðinu í golfi eru úr Golfklúbbi Akureyrar. Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir, báðar úr GA, ásamt Emblu Hrönn Hallsdóttur úr GKG, hefja leik með íslenska stúlknalandsliðinu í golfi á Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða, World Junior Girls Championsip, í dag. 

Mótið fer fram í Brampton golfklúbbnum í Ontario í Kanada, hefst í dag og stendur fram á laugardag. Keppnin samanstendur bæði af einstaklings- og liðakeppni. Leiknar verða 72 holur í höggleik, 18 holur á dag, þar sem tvö bestu skorin hjá hverju liði telja á hverjum hring í liðakeppninni. Alls taka 24 sveitir frá 23 þjóðum þátt í mótinu. Kanada sendir tvö lið til keppni og keppendur eru 72 talsins.

Bryndís Eva var einnig í liðinu í fyrra, en Lilja Maren og Embla Hrönn taka nú þátt í fyrsta skipti. Íslenska liðið náði í fyrra sínum besta árangri og enduðu stúlkurnar jafnar í 16. sæti. 

Á vef Golfsambands Íslands kemur fram að síðustu tveir dagar hafi farið í að kynnast vellinum og undirbúa liðið fyrir keppnina. Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, er með hópnum í Kanada. „Völlurinn er alveg frábær, þetta er skógarvöllur með mjög hröðum og hæðóttum flötum. Völlurinn er í lengri kantinum þannig að stelpurnar eru á þó nokkrum holum með langar kylfur í innáhögg. Við erum búin að nýta dagana vel í að ná hraðanum á flötunum og einnig koma upp góðu leikskipulagi,“ segir Andri Þór á vef GSÍ.

Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni fær keppnisrétt á Opna CPKC kvennamótinu á LPGA-mótaröðinni á næsta ári. 

Hægt er að fylgjast með rástímum og stöðunni í mótinu - sjá hér.