Fara í efni
Íþróttir

Fimleikafélagið í hóp fyrirmyndarfélaga ÍSÍ

Fimleikafélag Akureyrar fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á opnu húsi félagsins síðastliðinn laugardag. Það var Hafdís Björg Hjálmarsdóttir varaformaður FIMAK sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri.

Til að verða fyrirmyndarfélag þarf að uppfylla ýmiskonar skilyrði sem lúta að starfsemi félags og stefnu í nokkrum málaflokkum, svo sem fræðslu- og forvarnarmálum, jafnréttismálum, umhverfismálum, persónuverndarmálum, menntun þjálfara og siðareglum.

„Við í Fimleikafélagi Akureyrar erum virkilega stolt af viðurkenningunni sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Handbókin sem varð til við þessa vinnu veitir okkur ákveðið aðhald, s.s. hvað varðar markmiðssetningar, verkferla og stefnur sem skipta okkur miklu máli og eflir starfið í alla staði,“ sagði Margrét Jóna Kristmundsdóttir skrifstofustjóri félagsins af þessu tilefni.

Á myndinni eru frá vinstri, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ, Halldór Örn Túliníus úr stjórn FIMAK, Viðar Sigurjónsson ÍSÍ, Peter Höller úr stjórn FIMAK, Hafdís Björg Hjálmarsdóttir varaformaður FIMAK, Margrét Jóna Kristmundsdóttir skrifstofustjóri FIMAK og Erna Jónsdóttir úr stjórn FIMAK. Þær Kristjana Ómarsdóttir og Ellen Kara Ívarsdóttir iðkendur í félaginu halda svo á fána Fyrirmyndarfélaga á milli sín.