Fáir heimaleikir, en mörg lið á faraldsfæti
Mörg Akureyrarlið verða á faraldsfæti um komandi helgi, frá fimmtudegi fram á sunnudag, útileikir í körfubolta, handbolta, blaki, íshokkí og fótbolta. Einu heimaleikir komandi viku eru í Lengjubikar karla í knattspynru, en bæði Þór og KA eiga heimaleiki, Þór á laugardag og KA á sunnudag.
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR - körfubolti
Þórsarar hafa ekki átt sérlega góðu gengi að fagna í 1. deild karla í körfubolta, sitja í 10. sætinu af 12 liðum með þrjá sigra eftir fyrstu 16 leikina. Þeir eiga að vísu eftir að spila við nokkur lið á svipuðum slóðum, en næsti leikur er þó einn af þeim erfiðari í vetur. Þórsarar sækja Héraðsbúa heim, en Höttur er í efsta sæti deildarinnar, hefur unnið 14 leiki og aðeins tapað tveimur.
- 1. deild karla í körfubolta
MVA-höllin á Egilsstöðum kl. 19:15
Höttur - Þór
- - -
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR - handbolti, blak, íshokkí
Karlalið Þórs í handbolta á fyrir höndum mjög mikilvægan leik í Olísdeildinni á föstudag. Þá er komið að heimsókn í Kórinn í Kópavogi. Þórsarar geta með sigri náð Selfyssingum og komist upp fyrir Stjörnuna, en þessi leið eiga þó auðvitað einnig leiki í næstu umferð, Selfyssingar úti gegn FH og Stjarnan heima gegn Haukum. HK er á sömu slóðum, situr í 10. sætinu með tíu stig, en á eftir leik sinn í 17. umferðinni, sem er í kvöld gegn botnliði ÍR. Kópavogsliðið getur því komist í 12 stig og farið upp í 8. sæti deildarinnar með sigri á ÍR í lokaleik 17. umferðarinnar.
- Olísdeild karla í handbolta
Kórinn í Kópavogi kl. 19
HK - Þór
- - -
Kvennalið KA í blaki er í 2. sæti Unbroken-deildarinnar með 34 stig úr 14 leikjum, átta stigum á eftir HK sem hefur leikið einum leik meira. KA fer í tveggja leikja höfuðborgarreisu um komandi helgi og verður fyrri leikurinn í Laugardalshöllinni á föstudagskvöld. Þar mætir KA sameiginlegu liði Þróttar R. og Blakfélags Hafnarfjaðar, sem er í 4. sæti deildarinnar með 17 stig úr 14 leikjum.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Laugardalshöllin kl. 19:30
Þróttur R./Blakfélag Hafnarfjarðar - KA
- - -
Kvennalið SA í íshokkí er langefst í Toppdeildinni, er með 33 stig úr 12 leikjum, en SR hefur náð sér í 17 stig í tíu leikjum. SA þarf því aðeins einn sigur í viðbót í síðustu fjórum leikjum sínum til að vinna deildarmeistaratitilinn og tryggja sér oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Þrír af þessum fjórum leikjum eru reyndar gegn SR, sá næsti er á föstu dag í Reykjavík.
- Toppdeild kvenna í íshokkí
Skautahöllin í Reykjavík kl. 19:45
SR - SA
- - -
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR - handbolti, fótbolti, blak, íshokkí
KA/Þór situr nokkuð örugglega í 6. sæti Olísdeildarinnar með 13 stig eftir 16 umferðir. Átta stig eru niður í næsta lið, Stjörnuna, en ofan við KA/Þór eru Fram og Haukar með fjórum stigum meira. Á laugardag er komið að heimsókn á Selfoss, en Selfyssingar sitja á botni deildarinnar með fjögur stig. Með sigri getur KA/Þór endanlega tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni, en nú eru fimm umferðir eftir af deildarkeppninni.
- Olísdeild kvenna í handbolta
Set-höllin á Selfossi kl. 15
Selfoss - KA/Þór
- - -
Karlalið KA í handbolta er í 5. sæti Olísdeildarinnar með 22 stig þegar fimm umferðir eru eftir af deildarkeppninni. KA hefur safnað mörgum stigum á heimavelli, en næsti leikur er útileikur gegn toppliði deildarinnar, Val. Valur er þó ekki langt undan því fjórum stigum munar á þessum liðum.
- Olísdeild karla í handbolta
N1 höllin að Hlíðarenda kl. 15
Valur - KA
- - -
Þór/KA sækir Þrótt og fyrrum þjálfara sinn, Jóhann Kristin Gunnarsson, heim í öðrum leik sínum í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins á laugardag. Liðið tapaði fyrsta leik sínum um liðna helgi, 3-5, á útivelli gegn Stjörnunni. Þetta verður hins vegar fyrsti leikur Þróttar í mótinu.
- Lengjubikar kvenna í knattspyrnu
AVIS-völlurinn í Laugardal kl. 15
Þróttur - Þór/KA
- - -
Þórsarar náðu í eitt stig á Skagann í fyrsta leik sínum í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins um liðna helgi, en á laugardag er komið að heimaleik þegar þeir taka á móti Seltirningum í Gróttu. Grótta hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Lengjubikarnum, 0-2 á móti Val og Aftureldingu. Leikurinn er skráður á Þórsvöll á vef KSÍ, en gera má ráð fyrir að því verði breytt og spilað verði í Boganum.
- Lengjubikar karla í knattspyrnu, A-deild
Þórsvöllur kl. 15
Þór - Grótta
- - -
Seinni leikur KA í höfuðborgarreisunni verður í Mosfellsbænum á laugardag, gegn liði Aftureldingar. Mosfellingar eru í 5. sæti deildarinnar með 14 stig úr 14 leikjum.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 15:30
Afturelding - KA
- - -
SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, er í baráttu um deildarmeistaratitilinn við lið SR, en Reykvíkingar standa örlítið betur að vígi, eru í efsta sæti Toppdeildarinnar með 26 stig úr 12 leikjum, en SA með 22 stig úr 11 leikjum. Ljóst er að þessi lið munu mætast í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.
SA mætir hins vegar Fjölni á útivelli á laugardag og getur með sigri komið sér upp að hælum SR-inga. Það má því búast við spennandi leikjum næstu þrjár vikurnar áður en það ræðst hvaða lið vinnur deildarmeistaratitilinn og þar með oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu.
- Toppdeild karla í íshokkí
Egilshöll kl. 16:45
Fjölnir - SA
SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR - körfubolti, fótbolti
Kvennalið Þórs í körfubolta tapaði toppsæti 1. deildarinnar í síðustu umferð til Aþenu, en liðin eru hnífjöfn á toppnum, bæði með 11 sigra og eitt tap, en Aþena með betra stigaskor í innbyrðis viðureignunum. Næsti leikur liðsins getur skipt sköpum um framhaldið því á sunnudag er komið að heimsókn í Grafarvoginn, en Fjölnir er í 3. sæti deildarinnar með níu sigra.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Dalhús í Grafarvogi kl. 16
Fjölnir - Þór
- - -
Karlalið KA í knattspyrnu hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins, fyrst heima gegn KR og svo úti á móti ÍR um liðna helgi. Næstu andstæðingar eru Íslandsmeistarar Víkinga, sem koma norður á sunnudag. Víkingar eru með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína.
- Lengjubikar karla í knattspyrnu, A-deild
Boginn kl. 16:30
KA - Víkingur
- - -
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net - sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.