Fara í efni
Íþróttir

Slök byrjun Þórsara og sex stiga tap í gær

Jalen Green í leik gegn KFG fyrr í mánuðinum. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar máttu þola sex stiga tap fyrir KV í næstefstu deild Íslandsmótsins í körfubolta karla, Bæjarins beztu deildinni, í gærkvöld. Lokatölur 96-90.

Eftir slakan fyrsta leikhluta þar sem Þórsarar skoruðu aðeins 11 stig var á brattan að sækja, heimamenn með 18 stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, sem Þórsarar náðu aðeins að minnka um tvö stig fyrir lok fyrri hálfleiksins. Þennan mun söxuðu Þórsarar síðan jafnt og þétt á í seinni hálfleiknum, munurinn sex stig að loknum þriðja leikhluta og um miðjan fjórða var hann kominn niður í eitt stig, 83-82. Heimamenn í KV náðu þó að svara og halda út á lokamínútunum og unnu að lokum sex stiga sigur, 96-90.

KV - Þór (29-11) (24-26) 53-37 (26-36) (17-17) 96-90

Jalen Green var stigahæstur Þórsara með 36 stig og Justn Andrew næstur með 26. Stigahæstir heimamanna voru Lars Erik Bragason með 33 stig og Finnur Tómasson með 29 stig. Skotnýting liðanna vekur athygli, 76% hjá KV og 68% hjá Þór enda var skráð aðeins 31 frákast samtals í leiknum, 16 hjá KV og 15 hjá Þór.

Þór er áfram í 9. sæti deildarinnar, hefur unnið tvo leiki eins og Hamar sem er í sætinu fyrir ofan. Fyrr neðan eru þjú lið með einn sigur hvert í fyrstu sjö umferðunum, Snæfell, Skallagrímur og Fjölnir.

Helstu tölur úr leiknum, stig/fráköst/stoðsendingar:

KV

Lars Erik Bragason 33/1/2, Finnur Tómasson 29/2/1, Hallgrímur Árni Þrastarson 10/5/2, Sturla Böðvarsson 8/4/1, Óli Gunnar Gestsson 8/2/0, Alexander Óðinn Knudsen 6/1/1, Tristan Ari Bang Margeirsson 2/0/0, Tómas Andri Bjartsson 0/1/1. Emil Alex Richter, Jóhannes Ragnr Hallgrímsson og Lárus Grétar Ólafsson komu ekki við sögu í leiknum.

Þór

Jalen Green 36/0/1, Justin Andrew 26/3/2, Pétur Cariglia 12/5/0, Axel Arnarsson 5/3/3, Baldur Örn Jóhannesson 5/3/0, Andri Már Jóhannesson 4/1/0, Hjálmar Helgi Jakobsson 2/0/0, Smári Jónsson 0/0/1. Arngrímur Friðrik Alfreðsson og Páll Nóel Hjálmarsson komu ekki við sögu í leiknum.

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í deildinni