Fara í efni
Íþróttir

Tilfinningaþrungin kveðjustund Arons

Aron Einar Gunnarsson var klökkur eftir landsleikinn í dag, þann 113. og síðasta á ferlinum. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson jafnaði í dag landsleikjamet Birkis Bjarnasonar þegar hann lék síðustu 25 mínúturnar í 3:0 sigri Íslands á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli. Óneitanlega er gaman að tveir Akureyringar skuli tróna á þessum toppi; báðir eiga Aron og Birkir að baki 113 landsleiki þegar landsliðsskórnir fara á hilluna góðu. Síðasti leikur Birkis með landsliðinu var 2022.

Með leiknum lauk glæsilegum landsliðsferli Arons Einars og vel var við hæfi að hann bæri fyrirliðabandið á lokakafla leiksins eftir að Orra Steini Óskarssyni fyrirliða var skipt af velli. Aron Einar hefur verið fyrirliði lang oftast allra í sögu karlalandsliðsins.

Númer 14 til minningar um Tinnu

Stundin þegar flautað var til leiksloka á Laugardalsvelli var tilfinningaþrungin. Aron Einar felldi tár og var ekki einn um það. Lengst af landsliðsferlinum lék Aron með númerið 17 á bakinu en í fyrsta leiknum, gegn Færeyingum í Kórnum 16. mars 2008, var hann í búningi númer 6. Í lokaleiknum í dag var keppnistreyja Arons Einars hins vegar númer 14 – hann óskaði eftir að leika í þeim búningi til minningar um systur sína, Tinnu Björgu Malmquist, sem lést langt um aldur fram árið 2023, aðeins fertug að aldri. Afmælisdagur Tinnu heitinnar var 14. ágúst.

Hér má sjá nokkrar myndir frá Laugardalsvelli í dag. Nánar um kveðjuleik Arons Einars síðar.

Þorvaldur Örlygsson formaður Knattspyrnusambands Íslands heiðraði Aron Einar fyrir leikinn í dag. Kristbjörg Jónasdóttir, eiginkona Arons, og synir þeirra þrír, Óliver Breki, Tristan Þór og Alexander, komu út á völlinn þegar Þorvaldur afhenti Aroni innrammaða landsliðstreyju númer 17 fyrir hönd KSÍ, sem þakklætisvott fyrir langan og gifturíkan landsliðsferil.

Fyrir-liða-skipun í síðasta skipti! Daníel Leó Grétarsson,  Aron Einar og Guðlaugur Victor Pálsson.

Landsliðshópurinn stóð heiðursvörð fyrir Aron Einar við aðalstúku Laugardalsvallar eftir að leikmenn tóku víkingaklappið með stuðningsmönnum og tolleruðu Aron í kveðjuskyni hinum megin.

Aron og synir hans þrír, Óliver Breki, Tristan Þór og Alexander, úti á velli eftir leikinn.

Aron Einar, eiginkona hans, synir, foreldrar, systkin og fleiri úr stórfjölskyldunni eftir leikinn í dag.