Emil Alengård tekur við þjálfun hjá SA
Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur tilkynnt um ráðningu Emils Alengård í starf yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna, ásamt U18 flokki félagsins fyrir næsta tímabil.
Emil er íshokkífólki að góðu kunnur enda er hann af mörgum talinn fremsti íshokkíleikmaður sem Ísland hefur alið, eins og það er orðað í tilkynningu íshokkídeildarinnar. Emil lék þó stærstan hluta ferilsins í Svíþjóð, auk þess að spila háskólahokkí í Bandaríkjunum. Þá var hann að sjálfsögðu landsliðsmaður um árabil. Hann mun því koma inn í öflugt starf hjá SA með mikla reynslu og þekkingu, bæði sem leikmaður og þjálfari.

Emil og Elísabet Inga við undirritun ráðningarsamnings Emils í starf aðalþjálfara SA. Mynd: sasport.is.
Emil kemur til félagsins frá Fjölni þar sem hann hefur starfað sem yfirþjálfari undanfarin ár. Þar gerði hann meistaraflokk kvenna að Íslandsmeisturum árin 2024 og 2025, ásamt því að hafa komið að uppbyggingu yngri flokka félagsins og þróun leikmanna á öllum aldri. Áður hafði hann starfað hjá sænska stórliðinu AIK við þjálfun U18 og U20 liða félagsins, ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í Allsvenskan, efstu deild íshokkísins í Svíþjóð og einni sterkustu deild heims.
„Ráðning Emils er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu íshokkístarfs SA. Markmiðið er að styrkja enn frekar þróun ungra leikmanna, efla tengingu milli yngri flokka og meistaraflokka og byggja áfram á þeirri sterku menningu sem einkennt hefur starf félagsins undanfarin ár,“ segir Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, formaður íshokkídeildar SA, í frétt á vef félagsins.
Stutt er síðan íshokkídeildin tilkynnti um heimkomu Sunnu Björgvinsdóttur, sem ekki aðeins styrkir kvennaliðið heldur tekur einnig að sér þjálfun U16 flokks félagsins. Það er því ljóst að Akureyringar ætla sér að ná betri árangri á komandi tímabili en því síðasta enda er þar alltaf stefnt að því að vinna titla, þó það hafi gengið brösuglega hjá meistaraflokkunum undanfarin ár.