Fara í efni
Íþróttir

Einar Árni og Sonja Lí íþróttafólk SKA 2025

Einar Árni og Sonja Lí æfa bæði erlendis og voru því ekki viðstödd þegar tilkynnt var um valið á íþróttafólki SKA 2025 á haustfundi félagsins. Það voru því feður þeirra, Kristinn Magnússon og Gísli Einar Árnason, sem tóku við viðurkenningunum fyrir þeirra hönd. Myndir: Skíðafélag Akureyrar.

Skíðafélag Akureyrar hefur valið íþróttafólk úr sínum röðum fyrir árið 2025. Sonja Lí Kristinsdóttir og Einar Árni Gíslason þóttu hafa skarað fram úr og hljóta þessa útnefningu hjá Skíðafélaginu. Tilkynnt var um valið á haustfundi félagsins.

Á vef SKA er talin upp helstu atriði frá skíðaárinu hjá þessum fulltrúum félagsins:

Sonja Lí Kristinsdóttir keppir í Alpagreinum.

  • Hún tók þátt á heimsmeistaramóti unglinga í Tarvisio Ítalíu.

  • Lenti í 9. sæti í svigi á FIS-móti í Vassfjellt í ferbrúar.

  • Íslandsmeistari í svigi á Skíðamóti Íslands.

  • Nýkomin úr meiðslum síðasta keppnistímabil.

  • Æfir í Noregi með NTG í Geilo.

Einar Árni Gíslason keppir í skíðagöngu.

  • Hann er bikarmeistari SKÍ í karlaflokki.

  • Varð í 2. og 3. sæti i einstaklingsgöngugreinum á Skíðamóti Íslands sem fram fór í Hlíðarfjalli.

  • Tók þátt í heimsmeistaramótinu í skíðagöngu sem fram fór í Þrándheimi í Noregi.

  • Er í Blandsliði í skíðagöngu.

  • Æfir í Noregi.