Fara í efni
Íþróttir

Bikarinn á loft? Beint streymi á Akureyri.net

Leikmenn SA fagna marki Baltasars Hjálmarssonar, þegar hann kom liðinu í 4:2 í síðasta heimaleik gegn SR. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Fjórði úrslitaleikur SA Víkinga,  karlaliðs Skautafélags Akureyrar, og liðs Skautafélags Reykjavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí fer fram í Reykjavík í kvöld. Bardaginn hefst klukkan 19.45 og verður sýndur beint frá leiknum á vef Íshokkísambands Íslands. Eins og upp á síðkastið verður útsendingunni streymt hér á Akureyri.net. Útsending hefst skömmu fyrir leik.

Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir SA Víkinga. Þrjá sigra þarf til að tryggja sér titilinn þannig að vinni Akureyringar leik kvöldsins er Íslandsmeistaratitillinn þeirra enn einu sinni.