Fara í efni
Fréttir

Umboðsmaður barna óskar upplýsinga

Umboðsmaður barna hefur óskað eftir að fá upplýsingar um það hvort og þá hvernig mennta- og barnamálaráðuneytið hafi lagt mat á bestu hagsmuni barna við ákvarðanatöku um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri. Hvort nemendur hafi fengið
tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvort samráð hafi verið haft við nemendur og þá með hvaða hætti. 

Umboðsmaður barna sendi ráðherra bréf í morgun vegna málsins. Þar kemur fram að umboðsmanni barna hafi borist erindi frá fulltrúum nemenda við Menntaskólann á Akureyri þar sem nemendur lýsa yfir óánægju sinni með skort á samráði við nemendur vegna sameiningar MA og VMA.

Í bréfi umboðsmanns kemur fram að mat á því sem er börnum fyrir bestu eigi ávallt að liggja til grundvallar ákvarðanatöku af hálfu hins opinbera og að slíkt mat eigi að framkvæma áður en ráðist er í aðgerðir sem varða börn með einum eða öðrum hætti. Jafnframt kemur fram að hluti af slíku mati sé að veita börnum tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að réttmætt tillit sé tekið til skoðana þeirra.

„Það er réttur barna að vera höfð með í ráðum við skipulag menntunar og skylda stjórnvalda að veita þeim raunverulega tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif. Þá óskaði umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna við ákvarðanatöku um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Hvort nemendur hafi fengið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvort samráð hafi verið haft við nemendur og þá með hvaða hætti,“ segir í tilkynningu á vef Umboðsmanns barna.

Smellið hér til að sjá bréf Umboðsmanns barna til ráðherra