Fara í efni
Fréttir

Um þúsund manns skoðuðu Vilhelm EA

Það þótti að sjálfsögðu spennandi að setjast í skipstjórastólinn. Ljósmynd: Þórhallur Jónsson

Um 1.000 manns þáðu boð Samherja um að skoða uppsjávarveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á laugardaginn. Skipið kom fyrst til Akureyrar 2. apríl á síðasta ári en sökum heimsfaraldursins var ekki hægt að sýna skipið opinberlega.

„Skipið lá við Oddeyrarbryggjuna að lokinni loðnuvertíð. Óhætt er að segja að stutt sé á milli vertíða, því Vilhelm Þorsteinsson lét úr höfn í gær, sunnudag, á kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu,“ segir á vef Samherja.

„Um eitt þúsund gestir skoðuðu skipið á laugardaginn og spurðu áhöfn skipsins um margvíslegt er verðar tækni og aðstöðu um borð í þessu glæsilega og vel búna skipi. Björgunarsveitin Súlur á Akureyri sá um að taka á móti gestum og gæta þess að alls öryggis væri gætt í hvívetna,“ segir á vef fyrirtækisins.

Fleiri mynd hér á vef Samherja.