Fara í efni
Fréttir

Tveimur nýjum róbótum bætt við í sumarleyfinu

Galvaskir starfsmenn mættir til leiks á ný í fiskvinnslu ÚA á Akureyri eftir sumarfrí. Myndir af vef Samherja

Vinnsla hófst á ný hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í síðustu viku eftir sumarleyfi og þar með er landvinnsla Samherja komin aftur á fullt skrið. Á hverju sumri er vinnsla stöðvuð tímabundið hjá Samherja á Dalvík og á Akureyri en ekki á sama tíma. Vinnsla fór aftur í gang á Dalvík í júlí.

„Þetta fyrirkomulag hefur gefist mjög vel. Með því að hafa ekki báðar vinnslurnar lokaðar samtímis getum við sinnt viðskiptavinum okkar betur og tryggt afhendingu afurða allt árið um kring,“ segir Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri hjá ÚA, á vef fyrirtækisins.

Þótt hlé sé gert á fiskvinnslu standa vinnsluhúsin ekki tóm heldur er þar ys og þys, en af öðru tagi en alla jafna. Iðnaðarmenn eru þá á hverju strái því sumarið er notað til viðhalds og endurbóta.

Sjálfvirki þrifaróbótinn sem tekinn var í notkun í fiskvinnslu ÚA á Akureyri í sumar. 

Húsin fara „í slipp“ eins og skipin

„Það má eiginlega segja að húsin fari í slipp, eins og skipin. Þá gefst færi á að sinna viðhaldi, gera breytingar og ráðast í verkefni sem erfitt er að framkvæma á meðan framleiðslan er í fullum gangi. Í sumar voru töluverð umsvif í húsinu, allt að 50 iðnaðarmenn á dag sem unnu að viðhaldi, lagfæringum og uppsetningu nýs tæknibúnaðar,“ segir Sunneva.

Meðal nýjunga eru tveir nýir róbótar sem hafa bæst við vinnsluna. Annar þeirra er sjálfvirkur þrifaróbóti af sömu gerð og tekinn var í notkun á Dalvík í fyrra. Búnaðurinn var þróaður af Samherja í samstarfi við kanadíska fyrirtækið Rbot9 og hefur vakið mikla athygli, að því er segir á vef fyrirtækisins.

  • Hér er frétt frá því í fyrrahaust um róbótann:

Verðlaunaður þrifaróbóti í landvinnslu Samherja á Dalvík


Sunneva, segir að fyrsta vikan hafi gengið vel. „Það koma stundum upp smávægilegir hnökrar þegar starfsemin er sett aftur af stað eftir sumarstopp, en það gekk greiðlega að leysa úr þeim. Nú erum við svo gott sem komin í full afköst,“ segir hún.

Hrefna Þorbergsdóttir þekkir vel til í fiskvinnslu ÚA, en þar hefur hún starfað í tæpa hálfa öld – frá árinu 1977. 

„Alltaf gott að koma aftur“

„Fiskvinnsluhús Samherja eru afar vel tækjum búin og er lögð mikil áhersla á þróun og nýjungar,“ segir á vef fyrirtækisins. Sunneva segir að þótt hátæknibúnaður gegni mikilvægu hlutverki þá sé starfsfólkið lykillinn að árangri. Góð stemming myndist í húsinu þegar starfsfólk kemur endurnært úr sumarfríi. „Fólk er ánægt að hittast aftur. Þetta er pínu eins og stór fjölskylda. Við búum að því að starfsmannavelta er lítil og margir hafa starfað hér í áratugi.“

Á vef Samherja er rætt við Hrefnu Þorbergsdóttur en ekki er ofsagt að hún þekki vel til í fiskvinnslu ÚA; Hrefna hefur starfað þar í tæpa hálfa öld – frá árinu 1977. Hún segir að þótt sumarfríið sé kærkomið þá sé alltaf gott að snúa aftur til vinnu.

„Já, ég var alveg tilbúin í það. Mér finnst fólk almennt ánægt með að koma aftur og hitta samstarfsfélagana. Félagslegi þátturinn skiptir miklu máli. Þetta er stór vinnustaður með fjölbreyttan hóp starfsfólks af mörgum þjóðernum, gott og duglegt fólk. Ég fer bjartsýn inn í haustið,“ segir Hrefna.

Hún nefnir jafnframt annan kost sem fylgir því að snúa aftur til starfa. „Það er auðvitað að fá aftur góðan og hollan mat í vinnunni. Hér er frábært mötuneyti sem starfsfólkið kann mjög vel að meta. Það er ægilega gott að borða hérna,“ segir Hrefna.