Fara í efni
Fréttir

Þórhallur, Karen og Helgi Steinar

Karen Sigurbjörnsdóttir, mannauðsfulltrúi við Sjúkrahúsið á Akureyri, verður í öðru sæti á Akureyrarlista Þórhalls Jónssonar við bæjarstjórnarkosningarnar í vor skv. heimildum akureyri.net og Helgi Steinar Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í þriðja sæti,  Þórhallur verður vitskuld í fyrsta sæti eins og áður hefur komið fram.

Þórhallur var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2018 til 2022 en hefur verið varabæjarfulltrúi frá síðustu kosningum. Hann sagði skilið við flokkinn eftir að raðað var á lista í byrjun febrúar; tapaði þá naumlega fyrir Berglindi Ósk Guðmundsdóttur þegar kosið var um 1. sætið á röðunarfundi fulltrúaráðs flokksins en hafði áður gagnrýnt fyrirkomulagið og krafist prófkjörs.

Eftir því sem næst verður komist verður Akureyrarlistinn í heild kynntur fyrir næstu helgi.

  • Frétt akureyri.net í lok febrúar:

Þórhallur Jónsson fer í sérframboð