Sveit SA keppti á EM í Svartfjallalandi
Sveit frá Skákfélagi Akureyrar (SA) hafnaði í 60. sæti á Evrópukeppni taflfélaga sem lauk í Svartfjallalandi nýverið. Sveit SA var meðal fjögurra íslenskra sveita sem tóku þátt í mótinu en alls voru 107 skáksveitir í opna flokknum á mótinu.
Tefldar voru sjö umferðir á mótinu og sex skákmenn skipuðu sveitirnir í hverri umferð. Sveit SA fékk sex stig úr þessum umferðum en liðið vann tvær viðureignir, gerði tvö jafntefli og tapaði þremur. Tvö stig fengust fyrir sigur í viðureign og eitt stig fyrir jafntefli. Akureyrska sveitin var nr. 57 í styrkleikaröðinni fyrir mótið, svo 60. sætið var nokkurn veginn í samræmi við það.
Liðið fékk afar erfitt verkefni strax í fyrstu umferð, þar sem andstæðingurinn var lið Evrópumeistara SuperChess Romania, sem skipuð var ofurstórmeisturum á hverju borði. Sjö skákir töpuðust en Bogi Pálsson náði óvæntu jafntefli á áttunda borði gegn sjálfum Ivan Sokolov og var með unnið tafl á tímabili.
Sveitir frá SA hafa áður tekið þátt í Evrópukeppni og jafnan styrkt lið sitt með „aðkomumönnum“. Til dæmis tefldi stórmeistarinn Margeir Pétursson á 1. borði fyrir SA í keppninni í ár en aðrir liðsmenn voru þeir Rúnar Sigurpálsson, Magnús Pálmi Örnólfsson, Gauti Páll Jónsson, Halldór Brynjar Halldórsson, Stefán Steingrímur Bergsson, Áskell Örn Kárason og Bogi Pálsson.
Bestum árangri SA-manna náðu þeir Áskell Örn og Halldór, en þeir fengu 3 vinninga úr 4 skákum. Magnús Pálmi fékk 4 vinninga af 6 og Bogi fékk 3 vinninga af 5. Allir hækka þeir talsvert á skákstigum vegna þessa árangurs.
A-sveit Breiðablik varð efst íslensku sveitanna og hafnaði í 36. sæti. B-sveit Breiðabliks varð í 63. sæti og Víkingur í 78. sæti. Tyrkneska liðið Bayegan Pendik Chess Sports Club varð Evrópumeistari með 13 stig en liðið vann sex viðureignir og gerði eitt jafntefli.