Skák: Símon varð Akureyrarmeistari
Skákþingi Akureyrar lauk síðastliðinn sunnudag þegar sjöunda og síðasta umferð mótsins var tefld. Símon Þórhallsson stóð uppi sem sigurvegari en hann hlaut 6 vinninga af 7 mögulegum. Þetta er í fyrsta sinn sem Símon hampar Akureyrarmeistaratitlinum.
Fyrir lokaumferðina voru þeir félagar Símon og Jón Kristinn Þorgeirsson efstir og jafnir með 5 vinninga en Jón náði Símoni að vinningum með sigri í innbyrðisskák þeirra í 6. umferð. Í lokaumferðinni lagði Símon Rúnar Ísleifsson að velli en Jón Kristinn mátti játa sig sigraðan gegn Áskeli Erni Kárasyni eftir miklar sviptingar í óljósri stöðu.
Eins og áður sagði hlaut Símon 6 vinninga, vann allar aðrar skákir en gegn Jóni Kristni. Jón Kristinn, Áskell og Markús Orri Óskarsson, Akureyrarmeistari síðustu tveggja ára, komu næstir með 5 vinninga og Smári Ólafsson fékk 4,5 vinninga.
Efstur yngri iðkenda – barna á grunnskólaaldri – varð Valur Darri Ásgrímsson með 4 vinninga. Alls voru 10 af 22 keppendum mótsins úr hópi yngri iðkendanna en Akureyrameistarar í yngri flokkum verða hinsvegar ekki krýndir fyrr en eftir meistaramót hinna yngri um miðjan mars.
Nánar má lesa um úrslit mótsins í frétt á vefsíðu Skákfélags Akureyrar.