Góður árangur SA í deildakeppninni
Sveitir Skákfélags Akureyrar (SA) náðu góðum árangri um síðastliðna helgi þegar fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram í Reykjavík. A-sveit félagsins trónir á toppnum í 1. deildinni og er nær öruggt með sæti í úrvalsdeild að ári. Seinni hlutinn fer fram venju samkvæmt í mars á næsta ári.
A-sveit SA bar sigur úr býtum í öllum fjórum viðureignum sínum í 1. deildinni og er efst 8 liða í deildinni með 8 stig. Munaði þar mest um góðan sigur á a-sveit Víkingaklúbbsins en þessar sveitir voru fyrirfram taldar líklegastar til að berjast um efsta sætið, sem veitir þátttökurétt í úrvalsdeild að ári. Auk þess að tapa gegn SA gerði Víkingaklúbburinn jafntefli gegn öðrum andstæðingi og þótt þrjár umferðir seinni hlutans séu enn ótefldar má mikið ganga á ef SA missir toppsætið í deildinni. Þeir Jón Kristinn Þorgeirsson, Mikael Jóhann Karlsson og Símon Þórhallsson voru atkvæðamestir SA-manna og fengu allir 3,5 vinninga í 4 skákum.
B-sveit SA einnig með fullt hús
B-sveit félagsins er sömuleiðis í kjörstöðu í efsta sæti 2. deildar. Sveitin vann allar sínar viðureignir og er með 8 stig en í þessari deild komast tvö efstu liðin upp í 1. deild. Markús Orri Óskarsson tefldi þrjár skákir fyrir b-sveitina og vann þær allar en hann tefldi auk þess eina skák með a-sveitinni og vann hana. Þeir Andri Freyr Björgvinsson, Haraldur Haraldsson og Þórleifur Karlsson fengu allir 2,5 vinninga úr þremur skákum með b-sveitinni.

Þessir heiðursmenn láta sig sjaldan vanta í deildakeppninni og hafa teflt ófáar skákir fyrir sveitir SA. Frá vinstri: Þór Valtýsson, Sigurjón Sigurbjörnsson og Smári Ólafsson. Mynd af myndavef SÍ.
C-sveitin deilir 3. sætinu í 3. deild með 4 stig eftir tvo sigra og tvö töp. Í þessari deild eru tvö efstu liðin í nokkrum sérflokki. Sigurður Eiríksson halaði inn flesta vinninga fyrir c-sveitina en hann fékk 3 vinninga úr 4 skákum. Smári Ólafsson kom næstur með 2,5 vinninga af 4.
Skákfélagið átti einnig sveit í 4. deildinni en þar tefla 23 lið. D-sveit SA er þar um miðja deild með 4 stig eftir tvo sigra og tvö töp í sínum viðureignum. Sigþór Árni Sigurgeirsson fékk flesta vinninga liðsmanna sveitarinnar, alls þrjá vinninga úr fjórum skákum.