Skák: Þorsteinn öldungameistari
Þorsteinn Þorsteinsson úr Taflfélagi Vestmannaeyja (TV) varð hlutskarpastur á Íslandsmóti öldunga í skák, 65 ára og eldri, sem fram fór á Akureyri um hvítasunnuhelgina. Þrír keppendur Skákfélags Akureyrar (SA) röðuðu sér í næstu sæti.
Keppendur voru alls tíu talsins og kepptu allir við alla eftir atskákarfyrirkomulagi, þar sem umhugsunartíminn er styttri en í kappskákum af hefðbundnara taginu. Fyrirfram var búist við því að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn myndi standa milli Þorsteins og Áskels Arnar Kárasonar úr SA en þeir voru stigahæstu keppendurnir og auk þess í góðri æfingu eftir að hafa teflt með sveit Íslands á heimsmeistaramóti öldungasveita í Albaníu nýverið.
Það gekk eftir og eftir jafntefli í innbyrðisviðureign þeirra var spurningin bara hvernig þeim reiddi af gegn öðrum keppendum. Þorsteinn gerði eitt jafntefli til viðbótar og endaði því með 8 vinninga úr skákunum 9. Áskell Örn þurfti hins vegar að sætta sig við einu jafntefli meira og lauk leik með 7,5 vinninga í öðru sæti. Sigurður Eiríksson úr SA varð þriðji með 6,5 vinninga og þriðji keppandinn frá SA, Haraldur Haraldsson, varð fjórði með 5,5 vinninga.