Fara í efni
Fréttir

Sunna Hlín: „Nýtt aðalskipulag spennandi“

Bæjarfulltrúar Framsóknar, Gunnar Már Gunnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir, við undirskrift málefnasamnings flokksins, L-listans og Sjálfstæðisflokksins í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti B-lista Framsóknarflokksins, er að hefja sitt annað kjörtímabil í bæjarstjórn Akureyrar. Á síðasta kjörtímabili var flokkurinn í minnihluta en eftir nýafstaðnar kosningar var ljóst að fráfarandi meirihluti var fallinn og Framsóknarflokkurinn tekur sæti Miðflokksins í nýju meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokk og L-listann. Sunna Hlín er sátt við áherslurnar í málefnasamningi nýs meirihluta og segir í samtali við blaðamann að hún hafi sjálf ekki haft áhuga á bæjarstjórastólnum. Hún mun taka við formennsku í skipulagsráði. 

„Ég var ekki að setja mig fram sem bæjarstjóraefni en var opin bæði fyrir pólitískum bæjarstjóra og að ráða. Ég er bara mikið vinnudýr og vil sinna afmörkuðum verkefnum og hafði ekki áhuga á þessu. En ég var alveg til í að prófa að fara aftur í pólitískan bæjarstjóra,“ svarar Sunna Hlín spurningunni um það af hverju ákveðið var að ráða pólitískan bæjarstjóra.

En fenguð þið þá í staðinn eitthvað meira fram af ykkar málefnum í samkomulaginu?

„Já, klárlega, en auðvitað þurftum við að ræða okkur niður á það hvað kæmi best út fyrir flokkana,“ segir Sunna Hlín. „Við erum að fá forseta bæjarstjórnar og formennsku í skipulagsráði. Við horfðum á það þannig að við vildum koma okkar málefnum vel fyrir, sem voru til dæmis húsnæðismál og málefni eldri borgara og við fáum líka formennsku í velferðarráði,“ segir Sunna Hlín enn fremur. „Við settum líka atvinnumál í öndvegi og Sverre Jakobsson verður formaður stjórnar Hafnasamlags Norðurlands. Við viljum fara að spýta í uppbyggingu á Dysnesi og fara að huga að atvinnuuppbyggingu þar,“ bætir hún við.

Þannig að það hafa ekki verið miklir átakafletir í þessum viðræðum, miðað við hvað þetta gekk fljótt?

„Nei, alls ekki, bara um leið og ég sá hvernig þetta raðaðist upp fyrir okkar áherslur og mitt fólk, það var það sem skipti mig mestu máli,“ svarar Sunna Hlín.

Hvað er það fyrsta sem við bæjarbúar munum sjá, nýtt eða öðruvísi?

„Við sjáum að það eru nokkur mál sem við þurfum að fara að leggjast yfir strax í haust,“ svarar Sunna Hlín að bragði. „Það er til dæmis að stofna vinnuhóp í kringum leikskólamálin, hvernig við ætlum bæði að tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og svo líka koma til móts við foreldra. Við þurfum aðeins að fara að skoða betur og kanna viðhorf foreldra til þessa kerfis sem er eflaust hægt að „tvíka“ aðeins til,“ segir Sunna Hlín. „Við erum líka að fara að hefja undirbúning á gerð nýs aðalskipulags og það er líka ein ástæðan fyrir því að ég vildi fara í skipulagsráð. Rosalega spennandi vinna og mögulega vinnum við einhvers konar atvinnustefnu í kringum það,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir að lokum.