Fréttir
Sunna áfram oddviti og Gunnar Már í 2. sæti
07.03.2026 kl. 20:30
Efstu sex á lista Framsóknar, frá vinstri: Thea Rut Jónsdóttir (6.), Guðbjörg Anna Björnsdóttir (4.), Steinar Óli Sigfússon (5.), Sunna Hlín Jóhannesdóttir (1.), Sverre Andreas Jakobsson (3.) og Gunnar Már Gunnarsson (2.).
Bæjarfulltrúar Framsóknar á Akureyri verða í sömu sætum á lista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í maí og fyrir fjórum árum. Oddvitinn, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, verður í 1. sæti og Gunnar Már Gunnarsson í 2. sæti.
Sverre Andreas Jakobsson svæðisstjóri fyrirtækja hjá Arion verður í 3. sæti en var einu sæti neðar í kosningunum 2022. Guðbjörg Anna Björnsdóttir, skrifstofustjóri, verður í fjórða sæti. Listinn var birtur í dag, hér má sjá hann í heild:
