Fara í efni
Fréttir

Sumartónleikar 40. árið í röð í kirkjunni

Tónleikaröðin Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hefst í dag, en hún er nú haldin í fertugasta sinn! Tónleikaröðin hóf göngu sína sumarið 1987 fyrir tilstilli hjónanna Björns Steinars Sólbergssonar, þáverandi organista Akureyrarkirkju,  og Hrefnu Harðardóttur og er, eftir því sem næst verður komist, næstelsta tónleikaröðin hér landi! Röðin Sumartónleikar í Skálholti hefur verið haldin óslitin síðan 1975.

Haldir verða fernir tónleikarnir í Akureyrarkirkju og eru þeir fyrstu á dagskrá í dag, sunnudag 5. júlí, sem fyrr segir.

Það eru Margrét Árnadóttir sópransöngkona og Páll Barna Szabó píanóleikari sem hefja afmælishátíðina. Þau flytja íslensk og þýsk söngljóð eftir Clöru Schumann, Jórunni Viðar og fleiri.

Í tilefni afmælis Sumartónleika frumflytja Margrét og Páll einnig nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur, sem pantað var í afmælisgjöf handa hátíðinni og tónleikagestum. Margrét og Páll búa bæði og starfa við tónlist í Eyjafirði og á Akureyri, en Kristín Þóra er uppalin á Akureyri og stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri.

Aðgangur að tónleikunum er jafnan ókeypis en tekið á er móti frjálsum framlögum. Sumartónleikar verða í Akureyrarkirkju alla sunnudaga í þessum mánuði og hefjast allir kl. 17.00.

Páll Barna Szabó píanóleikari og Margrét Árnadóttir sópransöngkona koma fram í dag á fyrstu Sumartónleikum í Akureyrarkirkju að þessu sinni.

Alltaf frumflutningur

„Frumflutningshátturinn verður hafður á öllum tónleikum sumarsins,“ segir í tilkynningu frá tónleikaröðinni. „Fyrir hverja tónleika var pantað nýtt tónverk í tilefni afmælisárs. Sunnudaginn 12. júlí kemur upphafsmaðurinn sjálfur, Björn Steinar Sólbergsson, að halda upp á afmæli Sumartónleika með því að leika á orgel kirkjunnar tónlist eftir m.a. J.S. Bach, Báru Grímsdóttur og Daníel Þorsteinsson, sem starfar við tónlist á Akureyri og nærsveitum. Björn Steinar frumflytur nýtt orgelverk, Festival Fanfare, eftir Þorvald Örn Davíðsson, stjórnanda Kórs Akureyrarkirkju og organista í Eyjafjarðarsveit.“

Björn Steinar Sólbergsson, fyrrverandi organisti í Akureyrarkirkju og annar upphafsmanna tónleikaraðarinnar fyrir 40 árum, leikur á tónleikum í Akureyrarkirkju sunnudaginn 12. júlí.


Sunnudaginn 19. júlí leikur Tríó Öræfi ásamt Arnaldi Arnarsyni tónlist fyrir flautu, víólu, selló og gítar. Þau frumflytja verk eftir Oliver Kentish sem lengi starfaði á Akureyri. „Einnig leika þau verk samin fyrir þessa óvenjulegu hljóðfærasamsetningu af m.a. Franz Schubert og Nicolo Paganini. Samspil hljóðfæranna fjögurra er mjög skemmtilegt og óvenjulegt að heyra þau leika saman á tónleikum. En meðlimir tríósins, Sóley Þrastardóttir, Ásdís Arnardóttir og Þórunn Harðardóttir búa á Austurlandi, Norðurlandi og í höfðuborginni, og Arnaldur kemur alla leið frá Barcelona.“


Andrew J. Yang leikur á píanó á lokatónleikum Sumartónleika í Akureyrarkirkju 26. júlí. Hann var um nokkurt skeið búsettur á Patreksfirði og stofnaði þar Píanóhátíð Vestfjarða. Nú býr hann og starfar við píanóleik og kennslu í Reykjavík, og stofnaði systurhátíðina Píanóhátíð í Reykjavík. Andrew flytur nú efnisskrá sem hverfist um endurminnigar og nostalgíu, tónlist eftir sjálfan sig, J. Brahms, F. Chopin og fleri. Hann frumflytur fjórða verkið sem pantað var í afmælisgjöf, nýtt verk eftir sjálfan sigm,“ Segir í tilkynningu Landsliðsmennirnir

Andrew J. Yang slær botninn í Sumartóneika á Akureyri að þessu sinni, með tónleikum sunnudaginn 26. júlí.


Menningarsjóður Akureyrarbæjar, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.