Steindu gluggarnir til útlanda í viðgerð
Margvísleg verkefni og kostnaðarsöm eru fyrirliggjandi fram að 100 ára vígsluafmæli Akureyrarkirkju árið 2040 eins og akureyri.net hefur fjallað um. Eitt þeirra viðhaldsverkefna sem þarf að ráðast í á næstu árum er að gera upp steindu gluggana fallegu kirkjunnar og til þess þarf að senda þá úr landi, að sögn Hjartar Narfasonar, formanns sóknarnefndar Akureyrarkirkju.
Hjörtur segir að fyrir nokkrum árum hafi það óhapp orðið að bolti fór í gegnum einn steinda gluggann og þýskur sérfræðingur hafi komið til að gera við hann. Sá hafi séð að tími væri kominn til að endurnýja lóðningarnar í gluggunum, þær væru orðnar óþéttar og farið að glamra í þeim. „Það er ekki hægt að gera þetta öðruvísi en taka rúðurnar úr og flytja þær erlendis til að gera við þær,“ segir Hjörtur. „Og þetta kostar alveg augun úr, til viðbótar við alla fyrirhöfnina við að taka rúðurnar úr og pakka þeim inn,“ bætir hann við og ljóst er að ásýnd kirkjunnar breytist talsvert á meðan hinar sögufrægu gluggarúður hennar, steindu gluggarnir, hverfa tímabundið á braut.
Ekki er ákveðið hvenær gluggarnir verða sendir utan í viðgerð, varla alveg á næstunni en þó er öruggt að það verður einhvern tíma fyrir 100 ára afmælið!
- Styrktarfélagið Vinir Akureyrarkirkju var stofnað sl. vetur með það að markmiði að styðja við endurbætur og viðhald kirkjunnar
- Vefur Vina Akureyrarkirkju – Hér er hægt að skrá sig í félagið

Matthías Jochumsson prýðir einn hinna fallegu, steindu glugga á suðurhlið kirkjunnar og er vitaskuld vel við hæfi, enda hefur kirkjan formlega verið kennd við þjóðskáldið og sóknarprest Akureyringa undir lok 19. aldar síðan í nóvember 2022 og nefnist nú Akureyrarkirkja - kirkja Matthíasar Jochumssonar. Mynd: Skapti Hallgrímsson