Fara í efni
Fréttir

Þorvaldur organisti í stað Eyþórs Inga

Þorvaldur Örn Davíðsson hefur verið ráðinn organisti í Akureyrarkirkju frá og með næstu áramótum. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Þorvaldur Örn Davíðsson hefur verið ráðinn organisti í Akureyrarkirkju frá og með næstu áramótum, í stað Eyþórs Inga Jónssonar sem lét af störfum 1. júlí eftir hafa verið í ársleyfi. Þá lætur Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti einnig af störfum hjá Akureyrarkirkju á næstunni og segir Hjörtur Narfason, formaður Sóknarnefndar Akureyrarkirkju, að staða hennar verði auglýst fljótlega.

Þorvaldur Örn hefur verið í hlutastarfi sem organisti og kórstjóri í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli frá árinu 2020 en verður í fullu starfi frá áramótum. Hann lauk framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri árið 2012 og MA prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og lagði jafnframt stund á nám í kirkjutónlist. Hann hefur mikla reynslu af kórstjórn og hefur samið bæði kórverk og orgelverk. Staða organista við Akureyrarkirkju var auglýst í lok maí sl. og var Þorvaldur annar tveggja umsækjenda.

Eyþór Ingi Jónsson hóf störf sem organisti við Akureyrarkirkju árið 2003. Hann fór í ársleyfi í fyrra og lét formlega af starfi organista 1. júlí. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Organistar hafa verið þaulsetnir

Sigrún Magna Þórsteinsdóttir er einnig að ljúka störfum við kirkjuna en þau Eyþór Ingi hafa lengi sinnt störfum organista í prestakallinu, auk þess að stýra tónlistarstarfi af mörgu tagi. Eyþór Ingi hóf störf árið 2003 og Sigrún Magna árið 2006, eftir að Björn Steinar Sólbergsson var ráðinn organisti við Hallgrímskirkju. Björn Steinar hafði þá verið organisti frá 1986, eða í 20 ár, og hann tók við af Jakobi Tryggvasyni sem var organisti við kirkjuna í heil 45 ár, frá 1941. Á undan honum var Sigurgeir Jónsson organisti í prestakallinu í 30 ár, þannig að óhætt er að segja að organistar hafi verið þaulsetnir í starfi.

Sigrún Magna Þórsteinsdóttir var ráðin organisti við Akureyrarkirkju árið 2006 en lætur af því starfi á næstunni. Mynd: Skapti Hallgrímsson