Hundraða milljóna viðhald framundan
- 15 ára áætlun fram að 100 ára vígsluafmæli kirkjunnar
- Allir geta orðið „Vinir Akureyrarkirkju“ og lagt verkefninu lið
Árið 2040 verða liðin 100 ár frá því Akureyrarkirkja - kirkja Matthíasar Jochumssonar var vígð og stefnt er að því að hin glæsilega kirkjubygging og kennileiti bæjarins verði í toppstandi á vígsluafmælinu, tilbúin fyrir næstu 100 ár. En til að svo geti orðið er nauðsynlegt að ráðast í ýmsar kostnaðarsamar viðhaldsframkvæmdir á næstu árum. Stofnað hefur verið styrktarfélagið Vinir Akureyrarkirkju, sem hefur það að markmiði að styðja við endurbætur og viðhald kirkjunnar, á grunni 15 ára áætlunar sem safnaðarstjórnin samþykkti sl. vetur.
Eins og akureyri.net greindi frá nýlega hefur komið í ljós að ástand pípuorgelsins í Akureyrarkirkju er verra en talið var og ljóst að viðgerðarkostnaður mun hlaupa á tugum milljóna króna. En þetta er aðeins eitt af mörgum viðhaldsverkefnum sem eru fyrirliggjandi og stefnt er að verði lokið fyrir 100 ára vígsluafmælið.

Meðal verkefna sem liggja fyrir er endurnýjun á kirkjugólfinu. Það er víða mjög illa farið – hér má sjá gott dæmi um það. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Viðhaldsverkefni upp á hundruð milljóna framundan
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju hefur sett fram metnaðarfulla áætlun á viðhaldsþörf kirkjunnar fram til ársins 2040, með tilheyrandi kostnaðaráætlun.
Stærstu kostnaðarliðirnir í viðhaldsáætluninni:
- 85 milljónir - Viðgerð á þaki safnaðarheimilis, dúkur og einangrun
- 80 milljónir - Endurnýjun á kirkjugólfi, liðlega 250 fm, auk breytinga á lögnum og lofti
- 60 milljónir - Utanhússklæðning á austurvegg safnaðarheimilis og gler
- 50 milljónir - Viðgerð á orgeli, stilling og hreinsun
- 45 milljónir - Endurnýjun á hellulögn vestan megin, bílastæði og innkeyrsla
- 25 milljónir - Málun, safnaðarheimili og í kirkjunni auk annars viðhalds
Fleiri verkefni eru á listanum en kostnaðaráætlunin í heild hljóðar upp á 429 milljónir króna. Þegar hefur verið lokið við viðgerðina á þaki safnaðarheimilisins og Hjörtur Narfason, formaður Sóknarnefndar Akureyrarkirkju, segir að stærstur hluti þess kostnaðar hafi verið fjármagnaður með framkvæmdaláni.

Inga Vestmann, formaður stjórnar Vina Akureyrarkirkju og Hjörtur Narfason, formaður sóknarnefndar kirkjunnar og varamaður í stjórn vinafélagsins. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Næsta verkefni sem ráðist verður í er endurnýjun á eldhúsinu í safnaðarheimilinu en að sögn Hjartar þolir það verkefni enga bið. Stærstu verkefnin á verkefnalistanum verða síðan sett á dagskrá þegar búið verður að safna fjármagni til þeirra. Sum þeirra eru þess eðlis að loka þarf kirkjunni á meðan þau eru unnin og þess vegna er nauðsynlegt að eiga fé til að geta unnið þau hratt og örugglega, segir Hjörtur.
Vinir Akureyrarkirkju
Eins og margir aðrir söfnuðir býr Akureyrarkirkja svo vel að hafa notið liðsinnis fjölda sjálfboðaliða í gegnum árin, sem hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu kirkjunnar. Er þar skemmst að minnast þegar sjálfboðaliðar undir styrkri stjórn Bryngeirs Kristinssonar sáu um að taka alla 270 stólana í Safnaðarheimilinu í gegn en stólarnir voru teknir í sundur, pússaðir, lakkaður og endurbólstraðir.
Hin stóru viðhaldsverkefni sem framundan eru næstu árin eru þó svo mikil að vöxtum að enn meiri utanaðkomandi aðstoðar er þörf. Söfnuðurinn hefur ekki bolmagn til þess einn og sér að standa undir hinum nauðsynlegu og brýnu framkvæmdum og sl. vetur var því stofnað styrktarfélagið Vinir Akureyrarkirkju, sem ætlað er að vinna með safnaðarstjórninni að því að draumurinn verði að veruleika - að Akureyrarkirkja verði upp á sitt besta árið 2040.
Safna liði og fjármunum til stuðnings
Vinir Akureyrarkirkju er almannaheillafélag og í samþykktum þess segir að tilgangur félagsins sé að styðja við endurbætur og viðhald Akureyrarkirkju, á grunni 15 ára áætlunar sem safnaðarstjórn hefur samþykkt. Auk þess að standa fyrir vitundarvakningu um sögu- og menningarlegt gildi Akureyrarkirkju er félaginu ætlað að afla fjár til að standa straum af viðhaldskostnaði í samræmi við fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun.

Akureyringum hefur alla tíð þótt afar vænt um kirkjuna. Hún var vígð sunnudaginn 17. nóvember 1940, mikið var um dýrðir og töluvert fjallað um athöfnina í blöðunum. Morgunblaðið lagði drjúgt pláss undir frásögn af kirkjuvígslunni á þriðjudeginum.
Inga Vestmann er formaður stjórnar Vina Akureyrarkirkju og aðrir í stjórn félagsins eru þau Ásthildur Sturludóttir, sr. Hildur Eir Bolladóttir, Hólmgeir Karlsson, Kristján Þór Júlíusson og Lilja Guðmundsdóttir. Varamenn eru Hjörtur Narfason og sr. Svavar Alfreð Jónsson.
Inga Vestmann segir í samtali við akureyri.net að stefnt sé að því að fá trygga vini kirkjunnar til að leggja verkefninu lið með mánaðarlegum eða árlegum framlögum, auk þess sem tekið er við frjálsum framlögum. Nú sé tækifæri til að leggja hönd á plóg við að vernda og efla eitt stærsta kennileiti Norðurlands og brýnt sé að sem flestir fylki sér að baki verkefninu.
Allir geta orðið Vinir Akureyrarkirkju og lagt verkefninu lið
Allir sem styðja tilgang félagsins geta gerst Vinir Akureyrarkirkju. Árlegt styrktar- og árgjald er 10.000 krónur og hægt er að skrá sig í félagið með því að fara inn á vefsíðu þess, vinir.akureyrarirkja.is og fylla þar út skráningarblað sem er hérna. Einnig er hægt að senda félaginu tölvupóst á netfangið vinirakureyrarkirkju@gmail.com.
Frjáls framlög er hægt að leggja inn á eftirfarandi reikning:
- Bankanúmerið er 1187-05-251690 og kennitala félagsins er 510625-2850.
Vert er að geta þess að þar sem um almannaheillafélag er að ræða eru framlög til félagsins frádráttarbær frá tekjuskattsstofni.

Prestar Akureyrarkirkju ásamt biskup Íslands að lokinni hátíðarmessu í nóvember á síðasta ári tilefni 85 ára afmælis kirkjunnar. Frá vinstri: Jóhanna Gísladóttir, Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur, Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, og Aðalsteinn Þorvaldsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson