Fara í efni
Fréttir

Slippurinn smíðar og setur upp vinnslubúnað

Oddeyrin í skipasmíðastöðinni Karstensen Skibsværft í Danmörku.

Slippurinn á Akureyri smíðar og sér um uppsetningu á vinnslubúnaði í Oddeyrina EA, skip Samherja sem verið er að breyta í Danmörku, en breytingarnar ganga m.a. út á að skipið verði í stakk búið til að hefja tilraunir með að koma með lifandi bolfisk að landi til vinnslu. Þeirri aðferð hefur ekki verið beitt við togveiðar áður. 

Oddeyrin EA bar áður heitið Western Chieftain. „Um er að ræða lítið notað og vel búið 45 metra langt uppsjávarskip sem Samherji festi kaup á með það fyrir augum að breyta því í fyrrnefndum tilgangi. Aðferðin byggist á því að fiski er dælt um borð og tankar eru útbúnir öflugu sjódælukerfi til að tryggja súrefni svo að fiskurinn dafni,“ segir á vef Samherja.

Umfangsmiklum breytingum lokið

Umfangsmiklar breytingar á skipinu fóru fram í Karstensen Skibsværft í Danmörku. Það var lengt um 10 metra og hefðbundnu vinnsludekki og fiskilest komið fyrir. Upphaflegir kælitankar í skipinu voru látnir halda sér en þeim breytt til að geyma lifandi fisk. Nýju dekkhúsi, sem mun hýsa flokkunaraðstöðu, var komið upp og unnið er að því að koma fyrir búnaði til flokkunar á afla eftir að honum er dælt um borð. Töluverð vinna er enn í gangi í brú þar sem unnið er að því að uppfæra ýmsan búnað og fiskleitartæki sem henta betur til bolfiskveiða. 

Alveg nýtt fyrir öllum sem að þessu koma

Vinnslubúnaðurinn er blanda af hefðbundnu og nýju, segir á vef Samherja; „er þar helst að nefna nýja tegund af þvottatanki og stórum blóðgunarbrunnum sem Slippurinn hefur hannað. Blóðgunarbrunnarnir ná frá vinnsluþilfari að tanktoppi en þannig næst mikið rúmmál fyrir afla í blæðingu sem eykur gæðin. Þá verður komið fyrir krapavél frá KAPP ehf. sem bæði verður notuð til að kæla afla í vinnslu og í lest. Með þessu er lögð áhersla á blæðingu og kælingu á þeim afla sem slátrað er um borð. Hugmyndin er samt sem áður að sem hæst hlutfall afla fari lifandi í tanka og verði afhent þannig í land. Heildarverðmæti vinnslubúnaðar frá Slippnum er á annað hundrað milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að skipið sigli heim til Akureyrar eftir um það bil fjórar vikur.

Smelltu hér til að lesa frétt Akureyri.net frá því í haust um þetta merkilega skip.