Fara í efni
Fréttir

Skila sér á heimaslóð eftir læknanám í Slóvakíu

Nýstúdentar frá MA 17. júní síðasliðinn ásamt Jóni Má Héðinssyni, skólameistara, og Sigurlaugu A. Gunnarsdóttur, aðstoðarskólameistara. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Kynn­ing­ar­sam­starf Mennta­skól­ans á Ak­ur­eyri við lækna­deild há­skól­ans í Mart­in í Slóvakíu hef­ur skilað þeim ár­angri að fjöl­marg­ir stúd­ent­ar frá norðlensk­um fram­halds­skól­um hafa farið í lækna­nám í Slóvakíu. Nokkrir fyrrverandi nemendur MA eru komnir aftur heim á norðlenskar slóðir til starfa, eftir nám í Slóvakíu. Þetta segir Jón Már Héðinsson, skólameistari MA, í Morgunblaðinu í dag.

Í Morgunblaðinu kemur fram að af um 1.700 nem­um í lækna­námi við háskólann í Martin séu 600 er­lend­ir, þar af flest­ir frá Nor­egi og Íslandi.

„Farsælt samstarf hefur í rúman áratug verið á milli MA og læknadeildarinnar ytra og hafa þó nokkuð margir nemar við báða framhaldsskólana á Akureyri auk fleiri norðlenskra skóla stundað læknanám í Martin í Slóvakíu. Jón Már Héðinsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, segir að væntanlegir nemar við læknadeildina þreyti aðgangspróf sem byggist að mestu á grunnatriðum í líffræði og efnafræði og þeir sem standist það fái skólavist. Heimavist er við skólann en margir MA-nemar hafa reynslu af slíku fyrirkomulagi. Um 1.700 nemar eru við Jessenius-læknadeildina, þar af um 600 erlendir, flestir frá Noregi og Íslandi,“ segir í Morgunblaðinu.

„Það hafa þó nokkuð margir fyrrverandi nemendur okkar útskrifast frá læknadeildinni í Slóvakíu og starfa á heilbrigðisstofnunum hér um slóðir. Ég heyri vel látið af þeim, þeir þykja góðir og vel menntaðir starfsmenn.“

Jón Már segir við Akureyri.net að eftir útskrift frá læknadeildinni í Slóvakíu gætu Íslendingarnir skilið eitthvað í pólsku, sem væri gott að hafa í bakhöndinni á Norðurlöndunum þar sem mikið er um Pólverja. „Það er ágætis valkostur við annað námsframboð á þessu sviði að geta boðið upp á námið í Slóvakíu,“ segir Jón Már Héðinsson.

  • Upphaflega var haft eftir Jóni, og vitnað í Morgunblaðið, að nemendur hefðu vald á pólsku eftir námið í Slóvakíu. Hann segir það full djúpt í árinni tekið; hann hafi sagt að þeir skildu eitthvað í pólsku. Því hefur verið breytt í þessari frétt.
  • Vinnustofa þar sem kynnt verður læknanám við Jessenius-læknadeildina við háskólann í Martin í Slóvakíu verður í Menntaskólanum á Akureyri nk. fimmtudag, 19. ágúst, kl. 14.