Fara í efni
Fréttir

Samþykkja ekki hugmynd um hótel

Horft úr Vaðlaskógi yfir til Akureyrar. Mynd af veg Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Skógræktarfélag Eyfirðinga getur ekki samþykkt hugmyndir um uppbyggingu hótels í Vaðlareit miðað við þau gögn sem félaginu hafa borist. Eigendur Skógarbaðanna stefna að því að byggja 120 herbergja hótel á svæðinu, steinsnar frá Skógarböðunum sjálfum.

Á vef Skógræktarfélagsins segir:

„Stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga hefur borist erindi frá Ómari Ívarssyni skipulagsfræðingi hjá Landslagi ehf. fyrir hönd landeigenda Ytri- og Syðri-Varðgjár vegna hugmynda um hótelbyggingu í Vaðlaskógi.

Eftirfarandi ályktun var bókuð á stjórnarfundi þann 6. desember 2022 vegna erindisins:

Stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga fagnar uppbyggingu á Eyjafjarðarsvæðinu og frumkvöðla- og framkvæmdaorku landeigenda Ytri- og Syðri-Varðgjár.

Félagið hefur haft umráðarétt yfir landi Vaðlaskógar allt frá árinu 1936 og ræktað þar skóg í 86 ár. Frá upphafi hefur markmiðið með ræktun skógarins verið að skapa yndisreit fyrir almenning til að njóta útivistar í skjóli trjánna.

Almennt er félagið mótfallið hvers konar mannvirkjagerð í Vaðlaskógi. Félagið áskilur sér þó rétt til að meta hvert mál fyrir sig en þá ávallt með lög félagsins og markmið að leiðarljósi en einnig þær skuldbindingar og réttindi sem umráðasamningur félagsins um Vaðlaskóg kveður á um.

Félagið getur ekki samþykkt hugmyndir um framkvæmdaáform út frá þeim gögnum sem fylgdu erindinu enda alls kostar óljóst með hvaða hætti framkvæmdir verða útfærðar eða hvaða áhrif fyrirhuguð mannvirkjagerð kemur til með að hafa á afnot og ásýnd skógarins. Einnig er ósamið um þann afnotamissi og skógfellingu sem hlytust af yrðu framkvæmdir að veruleika.

Félagið lýsir sig reiðubúið til áframhaldandi viðræðna við landeigendur um hugmyndir að framtíðarskipulagi Vaðlaskógar í landi Ytri- og Syðri-Varðgjár og vill benda á mikilvægi skógarins sem mótvægi við sífellt þéttari byggð allt í kring.“

Frétt Akureyri.net frá því í byrjun október:  Hyggjast opna 120 herbergja hótel við Skógarböðin 2024

  • Upphaflega fyrirsögnin var á þá leið að Skógræktarfélagið væri andvígt hótelbyggingu, en hið rétta er að félagið getur ekki samþykkt hugmyndir um framkvæmdir út frá þeim gögnum sem fylgdu erindinu, eins og segir í samþykktinni. Það kann hins vegar að breytast.