Fara í efni
Fréttir

„Eiginlega orðlaus“ vegna skattahækkana

Langþráður dagur! Hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer, þegar Skógarböðin voru opnuð í maí 2022. Þá klippti Sigríður á borða við innganginn. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Finnur Aðalbjörnsson, einn eigenda Skógarbaðanna, segist nær orðlaus yfir áætlunum ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% sem kynnt er í nýlegri fjármálaáætlun til næstu ára. Fyrirvarinn sé stuttur, Finnur segir í samtali við Vísi að þegar hafi verið gefin út verðskrá fyrir árið 2027 og ferðaþjónustuaðilar erlendis séu farnir að selja skv. henni. 

Skógarböðin voru opnuð 2022, þau voru stækkuð í fyrra og hótel er nú í byggingu við böðin. Finnur segir við RÚV að verið sé að fjárfesta fyrir sex og hálfan milljarð á svæðinu og allur rekstrarhagnaður í Skógarböðunum sé notaður við uppbygginguna. „Við erum eiginlega bara orðlaus yfir þessu hérna. Við erum búin að setja arðgreiðslubann á félagið okkar í 7 til 8 ár. Til að nota þessar krónur sem verða í afgang, það fer allt í uppbyggingu og til þess að búa til störf,“ sagði hann í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Finnur telur að endurskoða verði allan rekstur félagsins eftir þetta.

„Þetta er alveg víðáttugalið, ég þakka guði mínum að þetta fólk þarna á Alþingi sé ekki að reka fyrirtækið mitt, ég held að það myndi ekki ganga vel,“ segir Finnur. Hann sagði í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun Skógarböðin greiddu 700 krónur til ríkisins af hverjum gesti en við breytinguna myndi upphæðin hækka um 800 krónur þannig að skattur til ríkisins yrði um 1500 krónur á hvern gest. Hann segir erlenda ferðamenn um 30-40% þeirra sem kom í böðin. „Við vitum ekkert um þessa ferðamenn, hvort þeir halda áfram að koma eða hvað, en gestirnir okkar halda vonandi áfram að koma,“ segir hann.

Finnur bendir á að mikill fjöldi heimamanna kaupi árskort í lónið. „Við erum með rétt um 1.500 kort í gangi og megnið af þessu eru Akureyringar og nærsveitarmenn og það er þessu fólki að þakka að þessi uppbygging hefur getað orðið svona hröð,“ segir hann. Þetta mun náttúrulega setja þetta allt í uppnám af því að þetta fólk er bara að fara að borga þessa hækkun. Það er enginn afgangur til að vera að fara að borga þetta. Við sitjum ekki á neinum sjóðum eða einhverjum varaforða eða nokkurn skapaðan hlut. Við borgum ekki út neinar arðgreiðslur eða neitt. Það fer allt í uppbyggingu hérna á svæðinu. Það sem er verið að gera núna, það er bara verið að tefja það eða setja þetta allt í uppnám.“