Fréttir
Þjóðmál verðlaunuðu Finn og Sigríði
10.12.2025 kl. 16:00
Hjónin Sigríður M. Hammer og Finnur Aðalbjörnsson, eigendur og stofnendur Skógarbaðanna, og Þórður Gunnarsson sem veitti verðlaunin. Mynd: Þjóðmál/Kristinn Magnússon
Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer, stofnendur og meirihlutaeigendur Skógarbaðanna, hlutu á dögunum verðlaunin „kaupmaður ársins“ á hátíðarkvöldi hlaðvarpsins Þjóðmála, þess vinsæla hlaðvarps um stjórnmál og viðskipti.
Hjónin „lögðu allt undir við uppbyggingu Skógarbaðanna á Akureyri þegar þau sáu tækifæri í nýtingu þess heita vatns sem skilaði sér innan úr Vaðlaheiðinni í kjölfar borunar samnefndra ganga,“ segir á Facebook Þjóðmála.
„Þau hafa með elju og dugnaði byggt upp fyrirtæki sem hefur hvort tveggja í senn auðgað mannlífið í Eyjafirði og ýtt undir fjölbreyttari og gæði ferðaþjónustu á svæðinu. Fjöldi gesta hefur farið fram úr björtustu vonum og fyrir liggja áætlanir um frekari vöxt á starfsemi félagsins. Þau hjónin eru sönnun þess þegar einstaklingsframtakið fær svigrúm þá verða verðmæti til sem gagnast samfélaginu öllu,“ segir í tilkynningu Þjóðmála. „Á vettvangi Skógarbaðanna og tengdrar starfsemi verða til hundruð beinna og óbeinna starfa í Eyjafirði sem auka á atvinnutækifæri fólks og skila gríðarlegum tekjum til sveitarfélaganna á svæðinu.“