Samningur í höfn, kynntur á föstudag
Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn hafa náð saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar næstu fjögur ár skv. heimildum akureyri.net. Sömu heimildir herma að þetta verði tilkynnt í dag og að málefnasamningur verði svo kynntur á föstudaginn.
Hvert þessara framboða fékk 2 bæjarfulltrúa kjörna á laugardaginn en 11 sitja í bæjarstjórn Akureyrar.
Sjálfstæðisflokkur (2) og L-listi (3) voru í meirihlutasamstarfi með Miðflokki (1) á nýliðnu kjörtímabili.
- Sjálfstæðisflokkur (19,4%) – Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Heimir Örn Árnason
- L-listi (19,3%) – Óðinn Svan Óðinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Framsókn (15,1%) – Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson
L-listinn hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar undanfarin 16 ár, allt frá kosingunum 2010 þegar framboðið fékk hreinan meirihluta – sex bæjarfulltrúa. Það hafði engu stjórnmálaafli tekist í sögu Akureyrar og hefur ekki gerst síðan. Framsókn var síðasta í meirihluta kjörtímabilið 2018 til 2022 (ásamt L-lista og Samfylkingu) og Sjálfstæðisflokkurinn var í meirihluta á nýliðnu kjörtímabili sem fyrr segir en þar áður síðast kjörtímabilið 2006 til 2010.
Fréttin hefur verið uppfærð. Nánar síðar