Ritvilla í nafni oddvita Viðreisnar á kjörseðli
Nafn oddvita Viðreisnar í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri í gær var ekki rétt stafsett á kjörseðlinum. Fullt nafn oddvitans er Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir en á seðlinum var millinafnið skrifað Oktavía – a er þar í stað o.
- Nafnið Oktavía er ekki algengt hérlendis. Á vef Hagstofunnar má sjá að 16 Íslendingar bera nafnið Oktavía sem 1. eiginnafn og 7 sem bera það sem 2. eiginnafn. Byggt er á gögnum Hagstofunnar um mannfjölda 1. janúar 2025.
- Samkvæmt sömu gögnum ber enginn nafnið Oktovía sem 1. eiginnafn en einn Íslendingur ber það sem 2. eiginnafn – oddviti Viðreisnar á Akureyri, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir.
Nafni ömmu Lovísu breytt að henni forspurðri
Amma Lovísu, Ingibjörg Oktovía Sveinsdóttir sem bjó á Ási í Glerárþorpi, var fædd árið 1916 en lést 1996. „Hún var skírð Ingibjörg Oktovía vegna þess að hún var fædd í mánuðinum október – sem þá var enn skrifaður oktober,“ segir Lovísa Oktovía við akureyri.net. Í dagblöðum frá þessum tíma má einmitt sjá nafn mánaðarins ritað, oktober, en hinn ritháttinn líka – október – og er sá síðarnefndi mun algengari. Síðasta dæmið um oktober á timarit.is er frá 1919.
Lovísa segir að starfsmenn Þjóðskrár hafi tekið sig til og breytt nafni ömmu hennar, að henni forspurðri, áratugum eftir að hún var skírð. „Hún reiddist því mjög og hætti að nota millinafnið; þegar amma dó var hún Ingibjörg O. Sveinsdóttir,“ segir Lovísa. Vert er þó að geta þess að vefnum gardur.is er Ingibjörg heitin nú skráð með millinafnið Oktovía.
„Stúlka Eyvindsdóttir“ í þjóðskrá
„Ég var skírð 1991 og var í nokkur ár skráð stúlka Eyvindsdóttir í þjóðskrá vegna þess að þar vildu menn ekki samþykkja ritháttinn Oktovía af því að hann væri hvergi til,“ segir Lovísa. Nafnið var hins vegar tekið gott og gilt nokkrum árum síðar „og er nú rétt skráð alls staðar, til dæmis í þjóðskrá og Íslendingabók.“
Réttur ritháttur var því í gögnum sem send voru kjörstjórn, að sögn oddvitans en Lovísa er ekki óvön því að seinna nafn hennar sé ranglega skrifað. „Það hafa nánast allir skrifað það vitlaust í gegnum tíðina, kennarar, læknar og fleiri, þannig að ég var um tíma að hugsa um að hætta að nota það, en núna nota ég það alltaf, alls staðar. Mér þykir mjög vænt um nafnið,“ segir hún.
Búið að prenta kjörseðlana
Lovísa sá villuna fyrst í Dagskránni fyrir einni og hálfri viku, miðvikudagskvöldið 6. maí, þegar þar birtist sýnishorn af kjörseðlinum. „Ég sendi póst á Júlí Ósk, sem er í kjörstjórn á Akureyri, og lét vita af þessu. Spurði hvort of seint væri að breyta þessari ritvillu. Júlí – sem er reyndar vön því að nafn hennar sé skrifað vitlaust; Júlía – sagði það því miður of seint því búið væri að prenta kjörseðlana, henni þætti þetta ótrúlega leiðinlegt og myndi sjá til þess, ef hún yrði áfram í kjörstjórn, að nafnið mitt yrði skrifað rétt ef ég færi aftur í framboð.“

Hluti kjörseðilsins á Akureyri í gær. Samkvæmt honum er Lovísa Oktavía Eyvindsdóttir í fyrsta sæti hjá Viðreisn, en oddvitinn heitir Lovísa Oktovía.