Redduðu pitsum ofan í 600 svanga farþega
Það var heldur betur handagangur í öskjunni í gærkvöld hjá starfsfólki Backpackers þegar óvænt þurfti að bjarga um 600 flugfarþegum sem fastir voru á Akureyrarflugvelli um matarbita. Kallað var eftir aðstoð hjá þremur pitsastöðum í bænum sem brugðust hratt við og tókst að fæða bæði starfsfólk og farþega.
Eins og greint var frá á akureyri.net í gær þurftu átta þotur Icelandair að lenda á Akureyrarflugvelli þegar veður- og brautarskilyrði í Keflavík versnuðu snögglega. Fjórar vélar Icelandair þurftu að bíða lengur á Akureyri en hinar því komið var yfir lögbundinn hvíldartíma áhafna. Nýjar áhafnir voru fluttar norður með vél sem lenti upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi og fóru vélarnar síðan til Keflavíkur ein af annarri, sú síðasta um tvöleytið í nótt.
Enginn fyrirvari og hillur tómar
Þetta skapaði verulegt álag á flugstöðina og þjónustu á svæðinu, ekki síst á veitingasöluna sem þurfti að bjarga 600 manns um matarbita. Veitingasalan á millilandasvæðinu, sem rekin er af Backpackers, er einungis opin þegar áætlunarflug er í gangi og því var enginn starfsmaður á staðnum og allar hillur tómar.
Að sögn Kristjáns Sigurólasonar, eins eigenda Backpackers, fékk hann símtal um áttaleytið í gærkvöld en þá lá hann slakur upp í sófa heima. En þegar ljóst var að fjöldi farþega væri á leiðinni inn þurfti að bregðast hratt við. Kristján segist hafa náð að ræsa systkini sín út til starfa sem og meðeigandann Birki Hermann og fleiri brugðust skjótt við og hófu tafarlaust að leysa vandann. „Við ræstum bara pitsastaðina í bænum. Spretturinn, Greifinn og Domino's, allir fóru í að baka,“ segir Kristján. Þá segir hann að það hafi verið henst út í næstu opnu búð og hillur tæmdar af samlokum, brauði, gosi og fleiru.
Eins og sést í þessu myndbroti var vel tekið á móti nýjum áhöfnum þegar þær lentu á Akureyrarflugvelli.
Aldrei áður svona mannmargt
Að sögn Kristjáns hefur aldrei áður verið jafn margt fólk í flugstöðinni á Akureyri en klappstólar voru dregnir fram svo fólk gæti fengið sæti. Farþegar voru margir hverjir pirraðir, þreyttir og svangir en stemmingin hafi batnað þegar allir voru búnir að nærast. Segir hann að starfsfólk bæði Icelandair og Isavia hafi lagt sitt af mörkum til að halda utan um aðstæður. Aðeins er leyfi fyrir um 450 manns inni í flugstöðinni og þurfti því að senda pitsur út í eina vél að sögn Kristjáns þar sem farþegar komust ekki inn. Hann segir að álagið hafi vissulega verið mikið en að lokum hafi allt gengið vel. Atvikið hafi jafnframt verið lærdómsríkt. „Við lærðum helling af þessu og reynslan mun nýtast ef svipuð staða kemur upp aftur.“