Fara í efni
Fréttir

Oftast strikað yfir nafn Berglindar Óskar

Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Heimir Örn Árnason.

Oftast var strikað yfir nafn Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, á kjörseðlinum í bæjarstjórnarkosningunum á laugardaginn – 41 sinni. Næst oftast var strikað yfir nafn Heimis Arnar Árnasonar, sem var í öðru sæti hjá Sjálfstæðisflokknum, 34 sinnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kjörstjórn á Akureyri.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks voru oftast strikaðir út, alls 105 sinnum, en svo fáar útstrikanir hafa engin áhrif á niðurstöður. Sjálfstæðisflokkur fékk flest atkvæði á Akureyri, alls 1.992.

Útstrikanir í kosningunum voru alls 269. Auðir seðlar voru 275 og 25 ógildir.

Hér má sjá þá frambjóðendur sem oftast var strikað yfir. Í sviganum kemur fram hvaða sæti viðkomandi skipaði á framboðslistanum.

  • (1) Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Sjálfstæðisflokki – 41
  • (2) Heimir Örn Árnason, Sjálfstæðisflokki – 34
  • (1) Hlynur Jóhannsson, Miðflokki – 20
  • (1) Þórhallur Jónsson, Akureyrarlista – 14
  • (3) Arna Rut Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki – 12
  • (1) Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Framsókn – 10
  • (3) Preben Jón Péturson, L-Lista – 10
  • (2) Elías Gunnar Þorbjörnsson, Viðreisn – 9
  • (2) Stefán Oddur Hrafnsson, VG – 9
  • (1) Óðinn Svan Óðinsson, L-Lista – 9
  • (1) Sindri Kristjánsson, Samfylkingu – 8
  • (4) Þórhallur Harðarson, Sjálfstæðisflokki – 7
  • (1) Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, Viðreisn – 4
  • (5) Andri Teitsson, L-Lista – 4
  • (21) Njáll Treusti Friðbertsson, Sjálfstæðisflokki – 4
  • (3) Ásrún Ýr Gestsdóttir, VG – 4

Útstrikanir voru alls 269 í kosningunum á laugardaginn og skiptust eftir framboðum sem hér segir:

  • Sjálfstæðisflokkur 105
  • Viðreisn 36
  • L-listi 31
  • Miðflokkur 25
  • Vinstri hreyfingin - grænt framboð 21
  • Akureyrarlisti 19
  • Samfylking 19
  • Framsókn 13