Fara í efni
Fréttir

Óðinn Svan verður í efsta sæti L-listans

Óðinn Svan hefur komið víða við í störfum sínum fyrir Ríkisútvarpið undanfarin ár. Hann birti þessar myndir ásamt fleirum á Facebook í dag þegar hann tilkynnti um starfslok á RÚV.

Óðinn Svan Óðinsson frétta- og dagskrárgerðarmaður verður í 1. sæti L-listans í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Óðinn Svan, sem er fjölmiðlafræðingur að mennt, hefur starfað hjá RÚV undanfarin sjö ár. Hann tilkynnti um starfslok þar á Facebook síðu sinni í dag: „Næsti kafli verður opnaður fljótlega og hann verður pottþétt álíka skemmtilegur og þessi,“ skrifaði Óðinn, og nú liggur fyrir hver fyrstu skref í nýjum kafla verða – kosningabarátta með L-listanum.

„Eftir tæp sjö ár hjá RÚV er nú komið að því að loka þeim kafla. Ég verð RÚV ævinlega þakklátur fyrir tækifærin og þau fjölmörgu verkefni sem mér hefur verið treyst fyrir,“ skrifaði hann. „Ég hef unnið með frábæru fólki, eignast góða vini og hitt fólk um allt land sem hefur treyst mér fyrir sínum sögum,“ skrifaði Óðinn á Facebook í dag.

„Ég er Akureyringur í húð og hár og þekki það á eigin skinni hversu gott er að búa á Akureyri og ala upp börn í bænum. En það þarf að passa að bærinn okkar haldi áfram að vaxa og dafna og þess vegna langar mig að bjóða fram krafta mín í það verkefni,“ sagði Óðinn við akureyri.net í dag. „Í störfum mínum hjá RÚV hef ég aflað mér víðtækrar reynslu af samfélagsmálum og stjórnsýslu og vil nýta þá reynslu í þágu heimabæjarins.“

L-listinn er með þrjá bæjarfulltrúa af 11 í bæjarstjórn og er þar í meirihlutasamstarfi en nokkuð er síðan núverandi oddviti listans, Halla Björk Reynisdóttir, gæfi ekki kost á sér áfram.

L-listinn hefur raunar verið í meirihluta í bæjarstjórn síðustu 16 ár; hlaut sögulega kosningu 2010 þegar hann fékk sex bæjarfulltrúa og hreinan meirihluta, sem hafði aldrei gerst í bæjarstjórn Akureyrar. Frá 2014 hefur L-listinn verið í samstarfi við aðra í meirihluta

Óðinn Svan er giftur Heiðdísi Rósu Sigurjónsdóttur og saman eiga þú þrjú börn.

Kosið verður til sveitarstjórna 16. maí í vor.