Fara í efni
Fréttir

Norðurorka veitti 38 samfélagsstyrki

Styrkþegar eða fulltrúar þeirra að lokinni úthlutun ásamt Eyþóri Björnssyni forstjóra Norðurorku. Mynd: Axel Þórhallsson

Norðurorka veitti á dögunum 38 styrki til samfélagsverkefna; til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála, að því er fram kemur á vef fyrirtæksins. Ekki er getið um upphæðir.

Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, segir á vefnum; starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Brennandi áhugi og metnaður

Alls bárust 100 umsóknir „og eftirtektarvert var hve fjölbreytni verkefnana er mikil sem lýsir vel þeirri grósku sem býr í samfélaginu okkar. Fjögurra manna vinnuhópur (skipaður starfsfólki NO) fór yfir umsóknirnar og varð niðurstaða hópsins að veita styrki til 38 verkefna. Verkefnið var erfitt enda fjölmörg góð verkefni sem sótt var um styrk til og ákveðin upphæð sem var til ráðstöfunar.“

Að þessu sinni tengjast flest verkefnanna íþróttum og útivist annarsvegar og fræðslu og stuðningi hinsvegar, menning og listir eru þó einnig áberandi. „Sem dæmi um fjölbreytileika verkefna sem hlutu styrk þá voru veittir styrkir til afreksíþróttafólks, heimildaskráningar, fræðslumorgna, þróunar á notkun D&D sem kennslutækis og fræðandi fyrirlestra á öldrunarheimilum á Akureyri. Stærsta styrkinn í ár hlutu Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri, til kaupa á speglunarskurðtæki fyrir skurðdeild sjúkrahússins.“

Nánar hér á vef Norðurorku