Fara í efni
Fréttir

MA-ingar söfnuðu 700 þúsundum fyrir Aflið

Fulltrúar Hugins, skólafélags Menntaskólans á Akureyri, mættu færandi hendi þegar þeir heimsóttu málþing Aflsins í Borgum við Norðurslóð á Akureyri á dögunum. Ástæða heimsóknarinnar var afhending á söfnunarfé því sem safnaðist í Góðgerðaviku sem nemendur stóðu fyrir í lok mars.

Upphaf Aflsins – samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi má rekja aftur til ársins 2002. Markmið Aflsins er að berjast gegn kynferðis- og heimilisofbeldi sem og öðru ofbeldi. Tilefni málþingsins í gær var 20 ára starfsafmæli samtakanna.

Þau Aron Snær Eggertsson, Arndís Erla Örvarsdóttir, Jóhannes Óli Sveinsson og Kolbrún Perla Þórhallsdóttir afhentu formanni Aflsins, Elínu Björgu Ragnarsdóttur, ávísun upp á 726.330 krónur. Líkast til mun söfnunarféð koma í góðar þarfir, segir á vef MA.

Á Facebook síðu Aflsins fá nemendur þakkir fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna. „Takk kærlega fyrir stuðninginn … þið eruð frábær“.