Fara í efni
Fréttir

161 nýstúdent frá MA – dúxinn með 9,64

Nýstúdentar frá Mennaskólanum á Akureyri sem brautskráðir voru í gær ásamt Karli Frímannssyni skólameistara og Sigurlaugu Önnu Gunnarsdóttur aðstoðarskólameistara. Mynd: Páll A. Pálsson

Í gær var 161 stúdent brautskráður frá Menntaskólanum á Akureyri. Áratuga hefð er fyrir því að skólinn brautskrái stúdenta 17. júní, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, og var skólanum nú slitið í 146. sinn. 

Dúx skólans (hæstur á stúdentsprófi) í ár er Elvar Björn Ólafsson með meðaleinkunnina 9,64.

Karl Frímannsson skólameistari kom víða við í ávarpi sínu á hátíðinni í gær og gagnrýndi m.a. yfirvöld menntamála harðlega; sagði aðgerðaleysi og úrræðaleysi menntamálayfirvalda hafa ráðið för varðandi framhaldsskólastigið á þessari öld, eins og akureyri.net greindi frá í gær.

Þá tilkynnti Karl um höfðinglega listaverkagjöf  hjónanna Knúts Bruun og Önnu Sigríðar Jóhannsdóttur. Frétt um það birtist einnig á akureyri.net í gær.

Um dúx skólans sagði á vef MA í gær: „Það er óhætt að segja að Elvar Björn hefur mörg járn í eldinum en nær engu að síður þessum góða námsárangri. Hann var í stjórn skólafélagsins í vetur, hefur undanfarin tvö ár leikið með LMA, náð góðum árangri í keppnum fyrir framhaldsskólanema í eðlisfræði, forritun og stærðfræði, er góður íþróttamaður, var á framboðslista stjórnmálaflokks fyrir sveitastjórnarkosningarnar og svo mætti áfram telja.“

Elvar Björn Ólafsson, dúx Menntaskólans á Akureyri. Hann var með meðaleinkunnina 9,64. Mynd af vef MA.

Semidúx (næsthæst á stúdentsprófi) var Anna Lóa Sverrisdóttir en hún var einnig í stjórn skólafélagsins í vetur og var virk í leikfélaginu og öðru félagsstarfi. „Af þeim tíu nemendum sem hlutu ágætiseinkunn á stúdentsprófi voru fjögur í stjórn skólafélagsins svo það má með sanni segja að miklir námshestar hafi valist til stjórnar Hugins,“ segir á vef MA.

Hæstu einkunn í 1. bekk hlaut Tobías Þórarinn Matharel, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir í 2. bekk og Elvar Björn Ólafsson í 3. bekk.

„Hvatningarverðlaun skólans hlaut Viltė Petkutė, sem var einmitt forseti skólafélagsins Hugins, en Hvatningarverðlaun MA hlýtur nemandi sem hefur jákvætt viðhorf til náms, skólans og nemenda og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í kringum sig. Auk hennar fengu 17 aðrir nemendur tilnefningar til hvatningarverðlauna. Kennarar skólans senda inn umsagnir.“

Fjölmargir nýstúdentar fengu verðlaun og viðurkenningar.