Fara í efni
Fréttir

Jón Ingi Cæsarsson – minningar

Útför Jóns Inga Cæsarssonar verður frá Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 19. júní, kl. 13.00. 

Jón Ingi fæddist í Reykjavík 13. desember 1952. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní síðastliðinn.

Foreldrar Jóns Inga voru Þórdís Eiríksdóttir og Kristvin Kristinsson en hjónin Hulda Ragnarsdóttir og Cæsar Hallgrímsson ættleiddu hann og komu með til Akureyrar sex daga gamlan.

Jón Ingi vann allan starfsferilinn hjá Pósti og síma, síðar Ísland­s­pósti og Póst­in­um. Hann sat lengi í stjórn Póst­manna­fé­lags Íslands og var formaður félagsins í sex ár. Jón Ingi starfaði í árafjöld að bæjarmálum á Akureyri fyrir Alþýðuflokkinn og síðan Samfylkinguna og var fyrsti formaður Samfylkingarinnar á Ak­ur­eyri við stofn­un flokksins árið 2001.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Jóns Inga er Guðrún Gunn­ars­dótt­ir. Syn­ir þeirra eru Atli Viðar og Bjarki Freyr. Dótt­ir Jóns Inga frá fyrra hjónabandi er Brynja.

Jón Ingi Cæsarsson – lífshlaupið

Eftirtalin skrifa minningargrein um Jón Inga á Akureyri.net í dag. Smellið á nöfn höfunda til að lesa grein.

Logi Einarsson

Arnór Bliki Hallmundsson

Samfylkingin á Akureyri

Stjórn Arfs Akureyrarbæjar