Fara í efni
Fréttir

Hermann hættur sem flugvallarstjóri

Hermann Jóhannesson hóf störf sem umdæmisstjóri Isavia og flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli um mitt síðasta sumar en er hættur. Mynd: Snæfríður Ingadóttir

Hermann Jóhannesson, umdæmisstjóri Isavia og flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli, hefur látið af störfum hjá Isavia. Hann segir að hann og Isavia hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok og segir að viðskilnaðurinn hafi verið í góðu.

Hermann og fjölskylda hans fluttu til Akureyrar frá Danmörku á síðasta ári og þann 1. júlí hóf hann störf á Akureyrarflugvelli. Hann segir í samtali við akureyri.net að hann fari að svipast um eftir öðru starfi í rólegheitunum. „Við tókum sameiginlega ákvörðun um að láta gott heita og skiljum bara í góðu,“ segir Hermann um starfslokin við Isavia.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia ohf., segir að gert hafi verið samkomulag um starfslok Hermanns og að hún tjái sig ekki meira um það.