Ísak Oddgeirsson kokkur á Björgúlfi EA 312, togara Samherja, gerði sérlega vel við áhöfnina í dag, páskadag, að því er segir í skemmtilegri færslu á Facebook síðu fyrirtækisins. Togarinn er á vertíðarslóð suðvestur af Reykjanesi, þannig að áhöfnin er fjarri fjölskyldum og vinum um páskana, eins og margir aðrir sjómenn.
„Þetta tókst ljómandi, strákarnir fengu andarbringur með hazelback og balsamicgjáa og í eftirrétt var skyr-frauð með hvítu súkkulaði og bláberjum. Þeir áttu svo sannarlega skilið að fá hátíðarmat á þessum degi, strákarnir. Og svo fengu allir páskaegg, þannig að hérna ríkir hátíðarstemning og við biðum að heilsa í land,“ segir Ísak kokkur.
Sannarlega hátíð í bæ hjá Ísak og samherjum hans um borð. Og svo var íslenski fáninn dreginn að húni í tilefni dagsins, eins og sjá má á tveimur myndanna.

