Gleðiefni ef einhverjum líður betur í dag en í gær
„Vanlíðan og skömm eru mikið samfélagsmein. Það gleður mig ef einhverjum líður betur í dag heldur en í gær.“
Þetta segir Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar, meðal annars í opnu bréfi til hópsins Drenglyndis á Akureyri sem akureyri.net birtir i dag.
Hópurinn sendi Gunnari nokkrar spurningar, sem hann svarar. „Ég styð heilshugar frjálsar samræður. Mér finnst mikilvægt að vera hreinskilinn og stend ekki fyrir neinar skoðanir sem ég get ekki viðrað,“ segir Gunnar.
Ein spurning Drenglyndis var þessi:
Að breyta líffræðinni er raunverulegur ómöguleiki. Samt er því haldið fram að mannkynið geti breytt kyni sínu. Telur þú eða þinn flokkur að mannvera geti skipt um líffræðilegt kyn? Ef já, hvernig er það gert?
Hluti svars Gunnars við spurningunni var að ofan en fullt svar er er þetta;
„Þetta finnst mér bara ekki áhugaverð spurning. Það snertir mig miklu meira þegar ég les um háa sjálfsvígstíðni samkynhneigðra sem og þeirra sem finnst þau lifa í röngu kyni. Vanlíðan og skömm eru mikið samfélagsmein. Það gleður mig ef einhverjum líður betur í dag heldur en í gær.“
- Grein Gunnars Más: